Mannanafnanefnd - úrskurðir
Mannanafnanefnd, úrskurðir 3. maí 2005
Fundur í mannanafnanefnd haldinn þriðjudaginn 3. maí 2005 í húsakynnum Orðabókar Háskóla Íslands, Neshaga 16, Reykjavík. Fundur hófst kl. 10:00. Mætt voru Aðalheiður Jóhannsdóttir (AJ), Guðrún Kvaran (GK) og Haraldur Bernharðsson (HB).
Mál nr. 38/2005
Eiginnafn: Lucia (kvk.)
Dagsetning beiðni: 18. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Lucia er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur rithátturinn áunnið sér hefð í íslensku máli í samræmi við ákvæði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 1. júlí 2004. Beiðni um nafnið Lucia er því hafnað.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Lucia er hafnað.“
Mál nr. 39/2005
Eiginnafn: Hnikarr (kk.)
Dagsetning beiðni: 15. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Mannanafnanefnd vekur athygli yðar á að eftirfarandi niðurstaða nefndarinnar breytir að mati hennar í engu rétti yðar til þess að bera eiginnafnið Hnikarr.
Eiginnafnið Hnikarr telst ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur rithátturinn áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Beiðni um nafnið Hnikarr er því hafnað.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Hnikarr er hafnað.“
Mál nr. 40/2005
Eiginnafn: Ernestó (kk.)
Dagsetning beiðni: 15. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Ernestó tekur eignarfallsendingu (Ernestós) og telst að öðru leyti uppfylla 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Ernestó er tekin til greina og skal nafnið fært á mannanafnaskrá.“
Mál nr. 41/2005
Eiginnafn: Jack (kk.)
Dagsetning beiðni: 12. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Jack tekur eignarfallsendingu (Jacks) og telst hafa áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, sbr. og vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 1. júlí 2004.
Úrskurðarorð:
Fallist er á beiðni um eiginnafnið Jack og skal það fært á mannanafnaskrá.“
Mál nr. 42/2005
Millinafn: Dúnhaugur
Dagsetning beiðni: 19. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Millinafnið Dúnhaugur hefur nefnifallsendingu og uppfyllir þ.a.l. ekki öll skilyrði 1. ml. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn.
Úrskurðarorð:
Beiðni um millinafnið Dúnhaugur er hafnað.“
Mál nr. 43/2005
Eiginnafn: Jóanna (kvk.)
Joana (kvk.)
Dagsetning beiðni: 28. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Jóanna tekur eignarfallsendingu (Jóönnu) og telst að öðru leyti uppfylla skilyrði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Eiginnafnið Joana uppfyllir ekki skilyrði tilvitnaðrar lagagreinar og er því hafnað.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Joana er hafnað. Fallist er á beiðni um eiginnafnið Jóanna og skal færa nafnið á mannanafnaskrá.“
Mál nr. 44/2005
Eiginnafn: Eleonora (kvk.)
Dagsetning beiðni: 28. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Eleonora er ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls né hefur rithátturinn áunnið sér hefð í íslensku máli í samræmi við ákvæði 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 1. júlí 2004. Beiðni um eiginnafnið Eleonora er því hafnað.
Úrskurðarorð:
Beiðni um eiginnafnið Eleonora er hafnað.“
Mál nr. 45/2005
Eiginnafn: Adrian (kk.)
Dagsetning beiðni: 10. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Eiginnafnið Adrian tekur eignarfallsendingu (Adrians) og telst hafa áunnið sér hefð í samræmi við 1. mgr. 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn, sbr. og vinnulagsreglur mannanafnanefndar frá 1. júlí 2004.
Úrskurðarorð:
Fallist er á beiðni um eiginnafnið Adrian og skal færa nafnið á mannanafnaskrá.“
Mál nr. 46/2005
Millinafn: Bjarnfjörð
Dagsetning beiðni: 10. apríl 2005
Kveðinn er upp svohljóðandi úrskurður:
Millinafnið Bjarnfjörð uppfyllir þær þær kröfur sem gerðar eru í 2. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn og er þ.a.l. samþykkt.
Úrskurðarorð:
Fallist er á beiðni um millinafnið Bjarnfjörð og skal færa nafnið á mannanafnaskrá.“


