Áfrýjunarnefnd neytendamála

Áfrýjunarnefnd neytendamála

Ákvarðanir Neytendastofu má kæra til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar neytendamála.

Heimild til áfrýjunar er að finna í 4. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda, nr. 62/2005.

Skrifleg rökstudd kæra skal berast áfrýjunarnefnd innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun Neytendastofu. Úrskurður áfrýjunarnefndar skal liggja fyrir innan sex vikna frá áfrýjun.

Í áfrýjunarnefnd neytendamála sitja þrír menn og jafn margir til vara, skipaðir af innanríkisráðherra. Formaður nefndarinnar og varamaður hans skulu fullnægja skilyrðum til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara.

Áfrýjunarnefnd neytendamála er skipuð þannig:

Aðalmenn:

Eiríkur Jónsson, dósent, formaður
Egill Heiðar Gíslason, verkefnisstjóri
Eyvindur G. Gunnarsson hrl.

Varamenn:
Ingiríður Lúðvíksdóttir, lögfræðingur (varaformaður)
Eiríkur Hauksson, viðskiptafræðingur
Sandra D. Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu fatlaðra, Selfossi

Skriflegar kærur til áfrýjunarnefndar skulu berast:
Áfrýjunarnefnd neytendamála
Pósthólf 8852
128 Reykjavík

Óskað er að rafrænt afrit kæru sé sent á netfangið afryjunneyt@simnet.is

Sjá úrskurði áfrýjunarnefndar neytendamála hér á vef Neytendastofu.

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefsvæðivefsvæði - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.