Atvinnuleyfi til útlendinga

Kæruheimild vegna ákvörðunar Vinnumálastofnunar um synjun eða afturköllun atvinnuleyfis hér á landi er að finna í 34. gr. laga um atvinnuréttindi útlendinga, nr. 97/2002, með síðari breytingum. Synjun eða afturköllun atvinnuleyfis má kæra til félags- og tryggingamálaráðuneytis og er kærufrestur fjórar vikur.

Félagsdómur

Félagsdómur er sérdómstóll sem starfar á grundvelli laga um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938. Hlutverk Félagsdóms er að dæma í réttarágreiningi aðila vinnumarkaðarins. Þá er heimilt að leita úrskurðar Félagsdóms um hvort starfsemi geti talist vera iðnaður og til hvaða iðngreinar hún taki.

Kærunefnd fjöleignarhúsamála

Kærunefnd fjöleignarhúsamála fjallar um ágreining milli eigenda í fjöleignarhúsum. Ágreiningurinn þarf að varða réttindi þeirra og skyldur samkvæmt lögum um fjöleignarhús, nr. 26/1994.

Kærunefnd húsaleigumála

Kærunefnd húsaleigumála fjallar um ágreining milli leigjenda og leigusala um framkvæmd og/eða gerð leigusamnings á grundvelli húsaleigulaga, nr. 36/1994.

Kærunefnd húsnæðismála

Kærunefnd húsnæðismála sker úr ágreiningsmálum sem kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda samkvæmt lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998, og reglugerðum settum samkvæmt þeim. Kærufrestur er fjórar vikur.

Kærunefnd jafnréttismála

Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, geta einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök, í eigin nafni eða fyrir hönd félagsmanna sem telja að ákvæði laganna hafi verið brotin á sér, leitað atbeina kærunefndar jafnréttismála. Jafnréttisstofa getur óskað eftir að kærunefnd jafnréttismála taki mál til meðferðar. Kærufrestur er sex mánuðir.

Úrskurðarnefnd almannatrygginga

Til úrskurðarnefndar almannatrygginga er unnt að kæra ágreining sem rís um grundvöll, skilyrði og upphæð bóta eða greiðslna samkvæmt lögum um almannatryggingar nr. 100/2007 eða samkvæmt lögum um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, ágreining um endurkröfurétt, ofgreiðslur og innheimtu, skv. 55. gr. laga um almannatryggingar, niðurstöður Sjúkratryggingastofnunar í málum er varða sjúklingatryggingu, sbr. lög nr. 111/2000, um sjúklingatryggingu og ágreining um grundvöll, skilyrði eða fjárhæð bóta skv. III. kafla laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008. Kærufrestur er þrír mánuðir.

Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðs­aðgerða

Til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða er unnt að kæra ákvarðanir Vinnumálastofnunar sem teknar eru á grundvelli laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Kærufrestur er þrír mánuðir.

Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála

Til úrskurðarnefndar fæðingar- og foreldraorlofsmála er unnt að kæra ágreining sem rís á grundvelli laga um fæðingar- og foreldraorlof, nr. 95/2000, ákvarðanir Tryggingastofnunar ríkisins um réttindi foreldra sem teknar eru á grundvelli laga um greiðslur til foreldra langveikra eða alvarlega fatlaðra barna, nr. 22/2006, og ákvarðanir Tryggingastofnunar um réttindi líffæragjafa sem teknar eru á grundvelli laga um réttindi lifandi líffæragjafa til tímabundinnar fjárhagsaðstoðar, nr. 40/2009. Kærufrestur er þrír mánuðir.

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.