Félagsdómur
Mál nr. 9/2009: Dómur frá 18. febrúar 2010
Ár 2010, fimmtudaginn 18. febrúar, var í Félagsdómi í málinu nr. 9/2009.
Alţýđusamband Íslands vegna
Félags vélstjóra og málmtćknimanna
gegn
Norđuráli Grundartanga ehf. og
Félagi iđn- og tćknigreina til réttargćslu
kveđinn upp svofelldur
D Ó M U R:
Mál ţetta var dómtekiđ 19. janúar sl. ađ loknum munnlegum málflutningi.
Máliđ dćma Eggert Óskarsson, Gylfi Knudsen, Kristjana Jónsdóttir, Lára V. Júlíusdóttir og Valgeir Pálsson.
Stefnandi er Alţýđusamband Íslands, Sćtúni 1, Reykjavík, vegna Félags vélstjóra og málmtćknimanna, Stórhöfđa 25, Reykjavík.
Stefndi er Norđurál Grundartanga ehf., Grundartanga, Akranesi.
Réttargćslustefndi er Félag iđn- og tćknigreina.
Dómkröfur stefnanda
Dómkröfur stefnanda eru ţćr ađ viđurkennt verđi ađ stefnandi, Félag vélstjóra og málmtćknimanna, fari međ samningsađild fyrir Kjartan Ólafsson, kt. 110359-4119, Hans Hafstein Ţorvaldsson, kt. 250859-2369, Guđmund M. Karlsson, kt. 100753-2359, Ţórarin Val Sverrisson, kt. 181055-2009, Jón Friđrik Jónsson, kt. 120453-3359, Hörđ Hallgrímsson, kt. 041062-3209, Óskar Guđmundsson, kt. 251059-6169, Vilhjálm Sigurđsson, kt. 031053-4639, Eystein Gústafsson, kt. 100754-3479, Jón Sigurjónsson, kt. 230546-4019, Kára Stefánsson, kt. 080952-4499 og Andra Ţór Kristjánsson, kt. 090577-5069, viđ gerđ kjarasamnings viđ stefnda, Norđurál Grundartanga ehf., vegna starfa ţeirra í álbrćđslu stefnda á Grundartanga.
Ţá er ţess krafist ađ stefndi, Norđurál Grundartangi ehf., verđi dćmdur til ađ greiđa stefnanda málskostnađ ađ skađlausu, ađ mati Félagsdóms.
Dómkröfur stefnda
Ađ stefndi verđi sýknađur af kröfum stefnanda.
Ađ stefnandi verđi dćmdur til ađ greiđa stefnda málskostnađ ađ mati dómsins.
Ekki eru hafđar uppi kröfur af hálfu réttargćslustefnda enda engar kröfur gerđar á hendur honum.
Málavextir
Stefnandi varđ til viđ sameiningu Vélstjórafélags Íslands og Félags járniđnađarmanna á árinu 2006. Stefnandi er eina fag- og stéttarfélag vél- og málmtćknimenntađra manna á landsvísu og eina stéttarfélagiđ sem semur bćđi fyrir vélstjóra og vélfrćđinga. Stefndi, Norđurál Grundartangi ehf., á og rekur álbrćđsluverksmiđjuna á Grundartanga. Félagiđ starfar á grundvelli fjárfestingasamnings viđ ríkisstjórn Íslands, sbr. lög nr. 62/1997, um heimild til samninga um álbrćđslu á Grundartanga.
Vegna uppbyggingar álbrćđslunnar á Grundartanga, var gert svokallađ „Samkomulag um meginreglur varđandi gerđ kjarasamninga“, dags. 18. nóvember 1997, milli Norđuráls hf., nú Norđuráls Grundartanga ehf., annars vegar, og Sveinafélags málmiđnađarmanna á Akranesi, Verkalýđsfélags Akraness, Verkalýđsfélagsins Harđar, Verkalýđsfélags Borgarness, Verslunarmannafélags Akraness og Rafiđnađarsambands Íslands, hins vegar, um skipan verkalýđsmála í vćntanlegri álbrćđslu Norđuráls hf. á Grundartanga í Hvalfirđi. Samkomulagi ţessu var ekki markađur sérstakur gildistími, en í ţví er hins vegar vísađ til framangreinds fjárfestingasamnings Norđuráls hf. og ríkisstjórnar Íslands, en gildistími ţess samnings er til 31. október 2018.
Í c-liđ kafla samkomulagsins, sem ber yfirskriftina „Forsendur samkomulagsins“, segir m.a.: „Hin vćntanlega álbrćđsla á Grundartanga er, ađ ţví er vćntanlega starfsmenn varđar, á félagssvćđi ofangreindra stéttarfélaga. Norđurál skuldbindur sig til ţess ađ láta félagsmenn stéttarfélaganna ganga fyrir um ráđningu nýrra starfsmanna ađ ţví tilskildu ađ ţeir uppfylli ţćr kröfur sem Norđurál gerir, enda sé (sic) félögin opin nýjum starfsmönnum óháđ búsetu.“
Í 1. grein samkomulagsins segir svo m.a.: „Stéttarfélögin munu standa sameiginlega ađ gerđ kjarasamnings, vinnustađasamnings, sem gilda mun milli allra starfsmanna sem eru félagar í stéttarfélögunum og Norđuráls.“ Síđar í ákvćđinu segir: „Vinnustađasamningur er kjarasamningur í skilningi 4. mgr. 5. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938, sbr. lög nr. 75/1996 um breytingu á ţeim.“
Í 3. grein samkomulagsins segir jafnframt ađ gildistími fyrsta vinnustađasamningsins milli ađila samkomulags ţessa skuli miđast viđ ađ hann falli úr gildi sex árum eftir ađ fullur rekstur hefst í 60.000 tonna álbrćđslunni, sem áćtlađ er ađ verđi um áramót 1998/1999, ţ.e. um áramótin 2004/2005. Ţađ sé sameiginlegt markmiđ ađila ađ stefnt skuli ađ ţví ađ ţeir vinnustađasamningar sem á eftir fari skuli gerđir til fimm ára hiđ minnsta í hvert skipti.
Núgildandi kjarasamningur, milli Norđuráls ehf. og ţeirra stéttarfélaga sem ađ samningnum standa, nú Verkalýđsfélag Akraness, Verkalýđsfélag Vesturlands, Verslunarmannafélag Reykjavíkur, Félag iđn- og tćknigreina og Rafiđnarsamband Íslands, er međ gildistíma frá 1. janúar 2005 til og međ 31. desember 2009. Um gildissviđ ţessa samnings er m.a. vísađ til framangreinds samkomulags um meginreglur og tekiđ fram ađ samkomulagiđ skuli teljast hluti kjarasamningsins.
Í grein 4.02.1 kjarasamnings starfsmanna Norđuráls hf. segir ađ félagiđ skuldbindi sig til ađ láta ţá, sem eru fullgildir félagsmenn í hlutađeigandi verkalýđsfélögum og samböndum, hafa forgangsrétt til ráđningar til ţeirra starfa sem um rćđir í 1. kafla samningsins.
Međ bréfi til Vélstjórafélags Íslands, dags. 5. desember 2003, óskuđu ellefu ţar tilgreindir starfsmenn hjá stefnda eftir inngöngu í Vélstjórafélagiđ. Í sama bréfi var ţess óskađ ađ félagiđ fćri međ samningsumbođ, fyrir hönd starfsmannanna, viđ gerđ nćstu kjarasamninga viđ fyrirtćkiđ. Ţessi ósk, um ađ gerđur yrđi kjarasamningur milli Vélstjórafélagsins og stefnda, vegna ţessara ellefu starfsmanna, var borin undir stefnda. Međ svarbréfi stefnda 21. maí 2004, var erindi félagsins hafnađ, međ vísan til ţess ađ í gildi vćri bindandi samkomulag viđ sex stéttarfélög, sbr. áđur tilvísađ samkomulag um meginreglur. Hafi ţau stéttarfélög skuldbundiđ sig til ţess ađ standa ađ gerđ vinnustađasamnings sem muni gilda fyrir alla sem séu félagar í umrćddum stéttarfélögum, enda hafi félagsmenn ţessara stéttarfélaga forgang til starfa. Skyldi ţetta fyrirkomulag gilda milli ţessara ađila međan fjárfestingarsamningur Norđuráls viđ ríkisstjórn Íslands vćri í gildi eđa a.m.k. til ársins 2018. Vélstjórafélagiđ fylgdi málinu ekki frekar eftir í ţađ sinniđ.
Međ bréfi stefnanda, dags. 27. apríl 2009, til áđurgreindra stéttarfélaga, sem nú standa ađ kjarasamningnum viđ stefnda, var ţví lýst yfir ađ félagiđ hefđi í hyggju ađ gera kjarasamning fyrir félagsmenn sína hjá Norđuráli, ţegar núgildandi kjarasamningur yrđi endurnýjađur um nćstu áramót. Var óskađ eftir samstarfi viđ stéttarfélögin og bođađi stefnandi til sameiginlegs fundar allra félaganna af ţessu tilefni. Félag iđn- og tćknigreina og Verkalýđsfélag Akraness lýstu ţví yfir ađ ţau myndu ekki fallast á samningsrétt stefnanda ţegar samningar vćru lausir. Varđ ţví ekki úr bođuđum fundi.
Međ bréfi stefnanda, dags. 12. maí 2009 til stefnda, var ţess á ný óskađ ađ stéttarfélagiđ kćmi ađ gerđ kjarasamnings fyrir félagsmenn sína í álveri stefnda á Grundartanga. Međ svarbréfi stefnda 29. júní sama ár var erindinu hafnađ á ný, međ sömu rökum og áđur. Stefnandi telur sig ţví ekki eiga annarra kosta völ en ađ sćkja viđurkenningu á samningsrétti sínum međ málshöfun ţessari fyrir Félagsdómi.
Málsástćđur stefnanda og lagarök
Stefnandi krefst ţess í málinu ađ viđurkenndur verđi réttur hans til gerđar kjarasamnings, fyrir hönd 12 félagsmanna hans er starfa í álbrćđslu stefnda á Grundartanga. Allir ţessir starfsmenn stefnda séu, og hafi veriđ, félagsmenn í stefnda (sic) um nokkurt skeiđ. Í dag starfi alls 34 félagsmenn stefnanda í álbrćđslu stefnda á Grundartanga.
Byggt er á ţví ađ stefnanda sé tryggđur ótvírćđur og skilyrđislaus réttur samkvćmt 1. mgr. 5. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 til gerđar kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna sinna, en í ákvćđinu segi eftirfarandi:
„Stéttarfélög eru lögformlegur samningsađili um kaup og kjör međlima sinna, enda hafi félagiđ í samţykktum sínum ákveđiđ ađ láta starfsemi sína taka til slíkra málefna.“
Samkvćmt 2. gr. laga stefnanda sé tilgangur félagsins ađ semja um kaup og kjör félagsmanna og gćta hagsmuna ţeirra, vinna ađ atvinnumálum og bćttu vinnuumhverfi félagsmanna og efla faglega og félagslega ţekkingu og hćfni félagsmanna.
Gerđ kjarasamninga hafi almennt veriđ taliđ mikilvćgasta hlutverk hvers stéttarfélags. Ţá sé reglan um samningafrelsiđ ein af grunnstođum samningaréttar og beri ađ túlka allar undantekningar frá henni ţröngt. Í máli ţessu standi hvorki efni né hagsmunir stefnda, eđa annarra, til ţess ađ gerđ sé slík undantekning. Ţađ sé ţví einsýnt ađ mati stefnanda, ađ ef meina ćtti honum ađ semja um kaup og kjör fyrir hönd áđurgreindra félagsmanna sinna, fćli ţađ í sér brot gegn 5. gr. laga nr. 80/1938 og lögum stefnanda.
Samkvćmt 1. mgr. 74. gr. stjórnarskrár íslenska lýđveldisins nr. 33/1944, sbr. 12. gr. laga nr. 97/1995, og 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu, sbr. lög nr. 62/1994, eigi menn rétt á ađ stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi, ţar á međal stéttarfélög. Nái sá réttur ekki einvörđungu til ţess ađ vera félagsmađur heldur einnig til ţess ađ láta til sín taka starfsemi félagsins, ţar međ ađ fela stéttarfélagi sínu umbođ til ađ gera kjarasamning, sbr. FD XI. bls. 484 (503). Ţađ vćri ţví andstćtt mannréttindaákvćđum framangreindra laga, bćđi jákvćđu og neikvćđu félagafrelsi, ef niđurstađa dómsins í máli ţessu yrđi sú ađ stefnanda vćri meinađ ađ gera kjarasamning fyrir ţá félagsmenn sína sem starfa hjá stefnda, ţegar samningar séu lausir um áramótin 2009/2010. Međ ţessu vćri veriđ ađ ţvinga félagsmenn stefnanda til ađ fela öđru stéttarfélagi, í ţessu máli Félagi iđn- og tćknigreina (FIT), sem ţeir vilji ekki vera félagsmenn í, umbođ ţeirra til gerđar kjarasamnings fyrir ţeirra hönd, en starfssviđ félagsmanna FIT í álverinu sé ađ mestu leyti ţađ sama og hjá félagsmönnum stefnanda.
Ađ mati stefnanda fćli slíkur ađstöđumunur einnig í sér brot gegn tjáningarfrelsisákvćđi 73. gr. stjórnarskrárinnar, međ síđari breytingum, ađ ţví er varđar umrćdda félagsmenn stefnanda. Međ ţví ađ meina stefnanda ađ semja um kaup og kjör ţeirra, fćlist í ţví raunveruleg ţvingun ţeirra til ađ vera í öđru stéttarfélagi en ţví, sem ţeir kjósi ađ vera félagar í, en fyrir liggi ađ skođanir, áherslur, uppbygging og starfsemi stefnanda og FIT, séu ekki ţćr sömu. Liggi ţađ í hlutarins eđli ađ teldu starfsmennirnir sig eiga samleiđ međ FIT og vildu fylgja ţeim ađ máli, vćru ţeir félagsmenn ţar, en ekki hjá stefnanda.
Ef meina eigi stefnanda ađkomu ađ gerđ kjarasamninga fyrir félagsmenn sína í álveri stefnda á Grundartanga, fćri slíkt jafnframt, ađ mati stefnanda, gegn jafnrćđissjónarmiđum, sbr. m.a. 65. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944, sbr. 3. gr. laga nr. 97/1995, ţ.e. ef heimila eigi einu stéttarfélagi á ákveđnu sviđi ađ semja um kaup og kjör félagsmanna sinna, en neita um leiđ öđru félagi á sama sviđi ađ gera hiđ sama. Engin efnisleg rök geti réttlćt slíka mismunun.
Stefndi hafi byggt á ţví ađ áđurnefnt samkomulag um meginreglur, frá árinu 1997, veiti ţeim félögum, sem nú standi ađ kjarasamningi starfsmanna Norđuráls, einkarétt til ađ semja um kaup og kjör fyrir hönd starfsmanna álversins, óháđ ađild ţeirra ađ stéttarfélögum. Vilji stefndi meina ađ ţetta samkomulag um meginreglur leiđi til ţess ađ honum sé óskylt ađ semja viđ stefnanda. Ţađ komi međ öđrum orđum í veg fyrir ađ stefnandi geti samiđ um kaup og kjör fyrir hönd félagsmanna sinna, nú ţegar kjarasamningar séu lausir. Ţetta fái ekki stađist ţar sem stefnandi sé ekki ađili ađ ţessu samkomulagi. Ţađ geti ţví engar skorđur sett lögbundnum rétti hans til gerđar kjarasamnings fyrir hönd sinna félagsmanna. Samkomulagiđ víki hvorki til hliđar samningsrétti stefnanda né áđur tilvísuđum mannréttindaákvćđum.
Ţađ sé svo ekki rétt hjá stefnda ađ í samkomulaginu sé kveđiđ á um ađ önnur stéttarfélög fái ekki komiđ ađ kjarasamningsgerđ starfsmanna álversins allt til ársins 2018. Í samkomulaginu sé ađkoma nýrra stéttarfélaga ekki útilokuđ og ţar segi alls ekki ađ forgangsréttur hvađ ţetta varđar, ef forgangsrétt megi kalla, gildi allt til ársins 2018. Í núgildandi kjarasamningi sé í grein 4.02.1 einvörđungu talađ um forgangsrétt félagsmanna til starfa í álverinu á gildistíma samningsins en ţar sé ekki minnst á forgangsrétt einstakra stéttarfélaga til gerđar kjarasamninga. Á ţessu sé ađ mati stefnanda grundvallarmunur.
Ef lögmćtur og gildur forgangsréttur ţeirra stéttarfélaga, sem nú standi ađ kjarasamningi starfsmanna álvers stefnda, teljist vera fyrir hendi í málinu ţá geti hann einvörđungu bundiđ hendur stefnanda međan kjarasamningur sé í gildi. Gildistíma kjarasamningsins í samkomulaginu sé ekki markađur gildistími til 2018, eins og stefndi hafi haldiđ fram. Hiđ rétta sé ađ samkvćmt 3. grein samkomulagsins sé kveđiđ á um ađ stefnt skuli ađ ţví ađ kjarasamningar skuli hafa fimm ára gildistíma, ađ liđnum ţeim fyrsta, sú sé og raunin, ţví núgildandi kjarasamningur gildi til fimm ára, frá 1. janúar 2005 til 31. desember 2009. Ţađ sé fjárfestingarsamningur milli Norđuráls og Ríkisstjórnar Íslands, sem sé međ gildistíma til ársins 2018 en ekki umrćddur kjarasamningur. Ljóst sé ţví af öllu framansögđu ađ umrćtt samkomulag um meginreglur, eđa núgildandi kjarasamningur, geti á engan hátt girt fyrir ađ stefnandi fái samiđ um kaup og kjör félagsmanna sinna, starfsmanna Norđuráls, ţegar samningar verđi lausir um nćstkomandi áramót.
Stefnandi kveđst byggja á stjórnarskrá íslenska lýđveldisins nr. 33/1944, einkum greinum 65., 73. og 74., međ áorđnum breytingum. Einnig 10. og 11. gr. laga nr. 62/1994, um mannréttindasáttmála Evrópu. Jafnframt lögum nr. 80/1938, einkum 1. gr. og 1. mgr. 5. gr. laganna. Um málskostnađ er vísađ til 1. mgr. 130. gr. EML. nr. 91/1991.
Málsástćđur stefnda og lagarök
Stefndi byggir kröfu sína um sýknu á ţví ađ hann sé ţegar bundinn af vinnustađasamningi viđ stéttarfélög sem taki til framleiđslu-, viđhalds-, skrifstofu- og annarra ţjónustustarfa í álveri stefnda ađ Grundartanga. Félag iđn- og tćknigreina eigi ađild ađ ţessum kjarasamningi vegna starfsmanna í vél- og málmtćknigreinum. Stefndi hafi međ gerđ kjarasamningsins skuldbundiđ sig til ađ viđurkenna Félag iđn- og tćknigreina sem réttan viđsemjanda sinn vegna ţessara starfa og undirgengist forgang félagsmanna ţess stéttarfélags viđ ráđningar nýrra starfsmanna.
Kjarasamningur stefnda og stéttarfélaganna sé vinnustađasamningur í skilningi 4. mgr. 5. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938. Stefndi telji ađ vinnustađasamningur um ákveđin störf útiloki önnur stéttarfélög frá ţví ađ krefjast samningsađildar vegna sömu starfa. Ţađ megi m.a. leiđa af tilurđ 4. mgr. 5. gr. laga um stéttarfélög og vinnudeilur, eins og henni hafi veriđ breytt međ lögum nr. 75/1996.
Stefndi byggir á ţví ađ hann hafi skuldbundiđ sig til gerđar vinnustađasamnings viđ ţau stéttarfélög sem ađild eigi ađ samkomulagi um meginreglur frá 18. nóvember 1997. Hann verđi ţví ekki međ réttu dćmdur til ađ virđa ţann samning ađ vettugi. Réttur stefnanda til samningsađildar gangi ekki framar ţeim skyldum sem stefndi hafi undirgengist á grundvelli kjarasamninga og rétti annarra stéttarfélaga á grundvelli sömu samninga.
Stefndi telur ađ kjarasamningurinn sé nauđsynlegur til ađ tryggja uppbyggingu og rekstraröryggi álvers stefnda á Grundartanga. Međ honum sé samiđ um öll almenn störf verkafólks og iđnađarmanna í framleiđslu- og viđhaldsstörfum og eigi ţađ einnig viđ um ţau störf sem starfsmenn stefnda, sem tilgreindir séu í kröfugerđ stefnanda, sinni. Kjarasamningurinn tryggi ađ öll stéttarfélög, sem ađild eigi ađ samningnum, komi til kjaraviđrćđna međ sameiginlega samninganefnd og nýr samningur sé borinn sameiginlega undir atkvćđi allra félagsmanna sem hann taki til. Kjarasamningurinn hafi einnig ađ geyma ákvćđi sem tryggi óslitinn rekstur álversins en hlutađeigandi stéttarfélög hafi skuldbundiđ sig međ samningnum ađ grípa ekki til vinnustöđvana, ţ.m.t. samúđarverkfalla, né annarra ađgerđa sem raskađ gćtu starfsemi álversins. Á móti njóti félagsmenn stéttarfélaganna forgangsréttar viđ ráđningar og hćrri launataxta en kveđiđ sé á um í almennum kjarasamningum. Viđurkenning á kröfu stefnanda um samningsađild grafi undan gildi vinnustađasamningsins og ţar međ ţví rekstraröryggi sem samningurinn tryggi. Vinnustađasamningurinn sé ţess eđlis ađ hagsmunir stefnda af ţví ađ halda öllum framleiđslu- og viđhaldsstarfsmönnum innan samningsins eigi ađ ganga framar rétti sömu starfsmanna til ađ fela öđru stéttarfélagi samningsađild.
Stefndi byggir jafnframt á ţví ađ forgangsréttur félagsmanna FIT útiloki gerđ kjarasamnings viđ annađ stéttarfélag um sömu störf.
Viđ gerđ samkomulags um meginreglur áriđ 1997 og vinnustađasamnings í janúar 1998 hafi einungis eitt stéttarfélag vélvirkja veriđ starfandi á Grundartanga, ţ.e. Sveinafélag málmiđnađarmanna á Akranesi (SMA). Sama hafi átt viđ ţegar samningurinn var framlengdur í apríl 2005 en ţá hafđi Félag iđn- og tćknigreina tekiđ yfir samningsađildina eftir sameiningu viđ SMA. Ţví liggi fyrir ađ ekki var gengiđ gegn rétti annarra stéttarfélaga á svćđinu međ samţykkt forgangsréttar félagsmanna SMA og síđar FIT viđ ráđningar nýrra starfsmanna.
Félagssvćđi Félags járniđnađarmanna, sem einnig hafi átt ađild ađ Samiđn, sambandi iđnfélaga, hafi ekki náđ til Grundartanga, enda annađ Samiđnarfélag međ starfsemi á ţví svćđi. Ţađ hafi fyrst veriđ haustiđ 2006, međ sameiningu Félags járniđnađarmanna og Vélstjórafélags Íslands í nýtt félag, Félag vélstjóra og málmtćknimanna (VM), ađ til varđ annađ félag vélvirkja á svćđinu. Stefndi hafni ţví ađ stofnun VM eigi sjálfkrafa ađ leiđa til ţess ađ nýtt stéttarfélag geti krafist viđurkenningar á samningsađild gagnvart stefnda og ţannig grafiđ undan forgangsrétti félagsmanna FIT og gildandi vinnustađasamningi.
Vélvirkjar, sem ráđnir hafi veriđ til stefnda, hafi frá upphafi veriđ félagsmenn í Sveinafélagi málmiđnađarmanna á Akranesi, síđar FIT. Viđ ráđningu til starfa hafi umrćddir starfsmenn samţykkt félagsađild ađ stéttarfélagi sem njóti forgangsréttar samkvćmt vinnustađasamningi stefnda. Félagsgjöld hafi veriđ dregin mánađarlega af launum starfsmanna og skilađ ásamt öđrum gjöldum til viđkomandi stéttarfélags. Stefndi hafi aldrei samiđ viđ vélvirkja um félagsađild ađ VM eđa skilađ félagsgjöldum til ţess félags. Stefndi byggi á ţví ađ umrćddir vélvirkjar séu ţví félagsmenn FIT og bundnir af ţeim vinnustađasamningi sem FIT hafi gert viđ stefnda. Ţví sé ekki hćgt ađ samţykkja ađ annađ stéttarfélag fari samhliđa međ samningsađild fyrir sömu starfsmenn.
Stefndi hafnar ţví ađ erindi Vélstjórafélags Íslands, dags. 5. desember 2003, sem vísađ sé til í stefnu, hafi nokkra ţýđingu. Vélstjórafélagiđ hafi á ţeim tíma einungis veriđ félag vélfrćđinga, vélstjóra og vélavarđa en hafi ekki náđ til vélvirkja.
Krafa um málskostnađ styđjist viđ 130. gr. l. nr. 91/1991 um međferđ einkamála.
Athugasemdir réttargćslustefnda
Réttargćslustefndi kveđur mál ţetta ekki lúta ađ réttindum réttargćslustefnda sem slíkum, en međ málsókn ţessari krefjist stefnandi viđurkenningar á ađ fara međ samningsađild fyrir hönd 12 nafngreindra einstaklinga viđ gerđ kjarasamnings viđ stefnda. Málum virđist vera blandađ í hve ríkum mćli stefnandi hafi efnt til ţessarar málsóknar ađ höfđu samráđi viđ ţessa einstaklinga, sbr. međfylgjandi yfirlýsingar. Áhorfsmál sé ţví um gildi málflutningsumbođs stefnanda í ţessum efnum. Á ţessu sé vakin athygli án ţess ţó ađ álitaefni ţetta lúti ađ réttindum réttargćslustefnda.
Ţá skuli áréttađ ađ samkvćmt fyrirliggjandi eyđublađi af skriflegum ráđningarsamningum, sem muni vera í samrćmi viđ starfssamninga starfsmanna, hafi hinir nafngreindu einstaklingar tekiđ afstöđu til ţess ađ um réttindi ţeirra fari samkvćmt réttindum félagsmanna réttargćslustefnda međ ţví ađ merkja viđ réttargćslustefnda sem stéttarfélag. Viđurkenning á rétti stefnanda til gerđar kjarasamnings muni ţví ađ óbreyttu ekki hafa áhrif á réttarstöđu ţessara einstaklinga nema ef fram komi ósk um breytingar á ráđningarsamningi af hálfu hvers og eins, eftir atvikum í kjölfar uppsagnar ráđningarsamnings viđkomandi.
Frá ţví sé réttilega greint í stefnu ađ réttargćslustefndi standi í nafni Sveinafélags málmiđnađarmanna á Akranesi, auk annarra stéttarfélaga og Rafiđnađarsambandsins, ađ sérstöku samkomulagi sem gert hafi veriđ viđ stefnda hinn 18. nóvember 1997. Samkomulag ţetta lúti ađ meginreglum varđandi gerđ kjarasamninga milli ţessara tilgreindu ađila sem ţeir hafi komist ađ samkomulagi um. Af hálfu réttargćslustefnda standi ekki annađ til en ađ efna samningsskuldbindingar sínar samkvćmt ţessu samkomulagi til loka gildistíma ţess, hinn 31. október 2018. Krafa stefnanda um viđurkenningu á samningsađild fyrir hönd nafngreindra einstaklinga hafi ekki áhrif á skuldbindingargildi yfirlýsinga réttargćslustefnda samkvćmt nefndu samkomulagi né annarra er ađ ţví standi.
Áréttađ skuli einnig ađ ţó stefnanda verđi játađ samningsumbođ fyrir hönd ţeirra einstaklinga sem dómkrafa stefnanda tilgreini, feli ţađ, eitt og sér, ekki í sér rétt stefnanda til handa ađildar ađ ţessu samkomulagi. Hvorki réttargćslustefndi né önnur stéttarfélög, sem hafi stađiđ ađ gerđ samkomulagsins 1997 verđi knúin til ţess ađ standa ađ gerđ kjarasamnings međ stefnanda, sbr. 4. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938, á forsendum ţess samkomulags međ dómsniđurstöđu í ţessu máli. Álitaefni er lúti ađ ţessu samkomulagi sé ekki úrlausnarefni dómsmáls ţessa. Slíkt sé sjálfstćtt úrlausnarefni.
Niđurstađa
Mál ţetta á undir Félagsdóm samkvćmt 2. tl. 44. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur.
Stefnandi, Félag vélstjóra og málmtćknimanna, krefst ţess ađ viđurkennt verđi ađ stefnandi fari međ samningsađild fyrir Kjartan Ólafsson, kt. 110359-4119, Hans Hafstein Ţorvaldsson, kt. 250859-2369, Guđmund M. Karlsson, kt. 100753-2359, Ţórarin Val Sverrisson, kt. 181055-2009, Jón Friđrik Jónsson, kt. 120453-3359, Hörđ Hallgrímsson, kt. 041062-3209, Óskar Guđmundsson, kt. 251059-6169, Vilhjálm Sigurđsson, kt. 031053-4639, Eystein Gústafsson, kt. 100754-3479, Jón Sigurjónsson, kt. 230546-4019, Kára Stefánsson, kt. 080952-4499 og Andra Ţór Kristjánsson, kt. 090577-5069, viđ gerđ kjarasamnings viđ stefnda, Norđurál Grundartanga ehf. vegna starfa ţeirra í álbrćđslu stefnda á Grundartanga.
Í 5. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur segir ađ stéttarfélög séu lögformlegur samningsađili um kaup og kjör međlima sinna, enda hafi félagiđ í samţykktum sínum ákveđiđ ađ láta starfsemi sína taka til slíkra málefna. Í 2. gr. laga stefnanda er fjallađ um tilgang félagsins og segir ţar ađ tilgangur félagsins sé m.a. ađ semja um kaup og kjör félagsmanna og gćta hagsmuna ţeirra.
Samkvćmt starfssamningum sem liggja frammi í málinu réđust tíu af ţeim tólf einstaklingum, sem stefnandi krefst samningsumbođs fyrir, til starfa hjá stefnda á tímabilinu 2. maí 2007 til 1. nóvember 2009 og voru ţá skráđir félagsmenn réttargćslustefnda, Félags iđn- og tćknigreina. Tveir ţeirra voru ekki skráđir félagsmenn réttargćslustefnda, Guđmundur Marteinn Karlsson, sem hóf störf 20. maí 2007 og er ekki skráđur félagsmađur neins félags, svo og Jón Friđrik Jónsson sem hóf störf 22. júní 2009 og er skráđur félagsmađur Verslunarmannafélags Reykjavíkur.
Í málinu liggur ekki fyrir úrsögn ofangreindra félagsmanna réttargćslustefnda úr ţví félagi. Ekki liggur heldur frammi yfirlýsing Jóns Friđriks Jónssonar um úrsögn úr Verslunarmannafélagi Reykjavíkur. Hins vegar liggja frammi inntökubeiđnir nokkurra ţessara manna í Vélstjórafélag Íslands: Kjartans Ólafssonar frá 9. júlí 1989, Guđmundar Marteins Karlssonar frá 11. júlí 1977, Ţórarins Vals Sverrissonar frá 18. nóvember 1987, Harđar Hallgrímssonar frá 19. október 1989, Eysteins Gústafssonar frá 27. mars 1973 og Kára Stefánssonar frá árinu 1972. Ţá sótti Vilhjálmur Sigurđsson um inngöngu í stefnanda 9. nóvember 2009. Inngöngubeiđnir annarra liggja ekki frammi. Allar ţessar inngöngubeiđnir, utan inngöngubeiđni Vilhjálms Sigurđssonar í stefnanda, eru mun eldri en starfssamningar ţeirra viđ stefnda. Inngöngubeiđnir í stefnanda vegna annarra starfsmanna liggja ekki fyrir í málinu.
Í samrćmi viđ ákvćđi starfssamninga hefur stefndi, samkvćmt gögnum máls, stađiđ skil á félagsgjöldum ţessara einstaklinga til ţess stéttarfélags sem ţeir óskuđu eftir ađ vera í viđ ráđningu, ţ.e. réttargćslustefnda, eins og fram kemur í starfssamningum sem liggja frammi í málinu. Var félagsgjöldum af Jóni Friđrik Jónssyni og Guđmundi Marteini Karlssyni einnig skilađ til ţess félags.
Starfsmenn hafa aldrei tilkynnt stefnda um úrsögn úr réttargćslustefnda eđa um inngöngu í nýtt félag. Yfirlýsing ţeirra frá 2. nóvember 2009 ţar sem ţess er óskađ ađ stefnandi fari međ samningsađild fyrir ţeirra hönd verđur hvorki túlkuđ sem úrsögn úr réttargćslustefnda né tilkynning um inngöngu í nýtt félag.
Undir flutningi málsins var upplýst ađ félagsgjöld af ţessum mönnum hefđu veriđ send áfram til stefnanda og átti ţađ ađ sýna fram á ađ mennirnir vćru félagsmenn í stefnanda. Stefndi kannađist ekki viđ ţessa framkvćmd en stefnandi vísađi til bókhaldskerfis lífeyrissjóđanna viđ innheimtu gjalda og ákveđinnar framkvćmdar um skil á félagsgjöldum milli félaga. Ekki liggur fyrir í málinu neinn samningur um slík skil milli stéttarfélaga eđa hvađa heimild byggt er á viđ framsendingu ţessara greiđslna og getur stefnandi ekki byggt kröfu sína um viđurkenningu á samningsađild viđ stefnda á ţessu atriđi.
Í málinu liggur fyrir bréf tiltekinna starfsmanna hjá stefnda til stefnanda, dags. 5. desember 2003, ţar sem ţeir óska eftir inngöngu í stefnanda. Enginn ţeirra starfsmanna sem ţađ undirrita eru međal ţeirra sem nú er óskađ eftir samningsumbođi fyrir. Hefur bréf ţetta ţví ekki ţýđingu í ţessu máli.
Samkvćmt framansögđu hefur ekki veriđ sýnt fram á ađ ţeir starfsmenn stefnda sem stefnandi krefst samningsumbođs fyrir séu félagsmenn í stefnanda.
Stefndi er ţegar bundinn af kjarasamningi viđ réttargćslustefnda. Í kjarasamningnum er tekiđ fram ađ ađilar hafi undirritađ hinn 18. nóvember 1997 samkomulag um meginreglur varđandi gerđ kjarasamninga ţar sem m.a. er kveđiđ á um ţađ ađ stefndi viđurkenni hlutađeigandi stéttarfélög sem viđsemjendur sína og ađ stéttarfélögin lýsi ţví yfir ađ ţau muni standa sameiginlega ađ gerđ kjarasamnings sem gildi vegna starfa í ţágu stefnda. Ţađ samkomulag telst hluti kjarasamningsins. Í starfssamningi stefnda viđ starfsmenn er tekiđ fram ađ starfssamningurinn sé gerđur í samrćmi viđ kjarasamning Norđuráls og verkalýđsfélaga, dags. 10. janúar 1998, sem teljist hluti starfssamnings ţessa.
Réttargćslustefndi er stéttarfélag sem gerir kjarasamninga fyrir sína félagsmenn viđ stefnda um sömu störf og stefnandi. Stefndi er bundinn í kjarasamningi ađ forgangsrétti félagsmanna réttargćslustefnda til starfa, en í gr. 4.02.1 segir ađ félagiđ skuldbindi sig til ađ láta ţá sem eru fullgildir félagsmenn í hlutađeigandi verkalýđsfélögum og samböndum hafa forgangsrétt til ráđningar til ţeirra starfa, sem um rćđir í 1. kafla samningsins, enda séu ţeir hćfir til ţess starfs, sem um er ađ rćđa og hafi tilskilin réttindi ţar sem ţeirra er krafist. Vegna ţessa forgangsréttarákvćđis er stefndi í raun bundinn af ţví ađ viđurkenna ađeins eitt stéttarfélag í hverri starfsgrein á viđkomandi félagssvćđi, sbr. og C-liđ í umrćddu samkomulagi frá 18. nóvember 1997 um meginreglur varđandi gerđ kjarasamninga.
Međ vísan til ţess sem ađ framan greinir verđur stefndi sýknađur af kröfum stefnanda í málinu.
Samkvćmt ţessum úrslitum málsins verđur stefnanda gert ađ greiđa stefnda málskostnađ, sem ákveđst 300.000 krónur.
D Ó M S O R Đ :
Stefndi, Norđurál Grundartanga ehf., skal vera sýkn af kröfum stefnanda, Alţýđusambands Íslands vegna Félags vélstjóra og málmtćknimanna, í máli ţessu.
Stefnandi greiđi stefnda 300.000 krónur í málskostnađ.
Eggert Óskarsson
Gylfi Knudsen
Kristjana Jónsdóttir
Lára V. Júlíusdóttir
Valgeir Pálsson


