Félagsdómur

Mál nr. 8/2002: Dómur frá 23. júní 2002.

23.6.2002

Ár 2002, sunnudaginn 23. júní, var í Félagsdómi í málinu nr. 8/2002:

Fjármálaráđherra f.h. ríkissjóđs

gegn

Lćknafélagi Íslands

og Félagi ungra lćkna

kveđinn upp svofelldur

dómur:

Mál ţetta, sem dómtekiđ var 21. júní síđastliđinn, var höfđađ 18. sama mánađar.

Máliđ dćma Helgi I. Jónsson, Gylfi Knudsen, Erla Jónsdóttir, Björn L. Bergsson og Kristján Torfason.

Stefnandi er Fjármálaráđherra, kt. 540269-6459, f.h. ríkissjóđs, Arnarhváli, Reykjavík.

Stefndu eru Lćknafélag Íslands, kt. 450269-2639, Hlíđarsmára 8, Kópavogi, og   Félag ungra lćkna, kt. 571193-2649, Hlíđarsmára 8, Kópavogi.

 

Dómkröfur stefnanda

Stefnandi krefst ţess ađ viđurkennt verđi ađ Lćknafélag Íslands hafi, viđ gerđ kjarasamnings ađila 2. maí 2002, fariđ međ samningsađild fyrir félagsmenn í Félagi ungra lćkna.

Ađ viđurkennt verđi ađ bođađar vinnustöđvanir félagsmanna Félags ungra lćkna, tímabundiđ í fjóra sólarhringa frá kl. 00 mánudaginn 24. júní til kl. 24 fimmtudaginn 27. júní 2002, tímabundiđ í fjóra sólarhringa frá kl. 00 mánudaginn 15. júlí til kl. 24 fimmtudaginn 18. júlí 2002, tímabundiđ í fjóra sólarhringa frá kl. 00 ţriđjudaginn 6. ágúst til kl. 24 föstudaginn 9. ágúst 2002 og allsherjarverkfall frá kl. 00 mánudaginn 2. september 2002, séu ólögmćtar.

Ţá gerir stefnandi kröfu um ađ stefndu verđi dćmdir in solidum til ađ greiđa stefnanda málskostnađ.

 

Dómkröfur stefnda Lćknafélags Íslands 

Ţess er krafist ađ stefndi verđi sýknađur af öllum kröfum stefnanda og stefnandi dćmdur til ađ greiđa stefnda málskostnađ ađ mati réttarins.

 

Dómkröfur stefnda Félags ungra lćkna

Krafist er sýknu af kröfum stefnanda og málskostnađar úr hendi stefnanda.

 

Málavextir

Stefnandi og stefndi, Lćknafélag Íslands, hófu á árinu 2001 viđrćđur um gerđ kjarasamnings en gildandi kjarasamningur sömu ađila hafđi runniđ út fyrr á sama ári. Lauk samningaviđrćđum 2. maí 2002 međ ţví ađ ritađ var undir kjarasamning milli stefnanda og St. Franciskusspítali annars vegar og Lćknafélags Íslands hins vegar. Skyldi kjarasamningurinn gilda frá l. apríl 2002 til 31. desember 2005 og falla ţá úr gildi án sérstakrar uppsagnar. Var kjarasamningurinn undirritađur af Lćknafélagi Íslands međ fyrirvara um samţykki félagsmanna. Samningurinn var samţykktur af 61.1% ţeirra félagsmanna Lćknafélags Íslands sem tóku ţátt í atkvćđagreiđslu um hann 16. maí síđastliđinn. Fram er komiđ í málinu ađ fulltrúi stefnda, Félags ungra lćkna, neitađi ađ rita undir kjarasamninginn vegna ţess ađ í honum hafi ekki veriđ virtar grundvallaróskir stefnda um vinnuákvćđi, kjör og fleira. Bođađi Félag ungra lćkna til aukaađalfundar 10. maí síđastliđinn ţar sem samţykkt var ađ gera félagiđ ađ sjálfstćđu stéttarfélagi sem starfađi á grundvelli laga um stéttarfélög og vinnudeilur nr. 80/1938 og meginreglu stjórnarskrárinnar um félagafrelsi. Telur Félag ungra lćkna sig ekki ađila ađ umrćddum kjarasamningi frá 2. maí síđastliđnum og hafi engir félagsmenn ţess tekiđ ţátt í atkvćđagreiđslunni um hann 16. sama mánađar.

Međ bréfi formanns Félags ungra lćkna til stefnanda, Landspítala- háskólasjúkrahúss, Fjórđungssjúkrahússins á Akureyri, Sjúkrahúss Akraness og St. Jósefsspítala, dagsettu 10. júní 2002, var tilkynnt ađ í atkvćđagreiđslu félagsmanna Félags ungra lćkna dagana 5. - 6. júní 2002 hefđi veriđ samţykkt verkfallsbođun félagsins á framangreindum sjúkrahúsum, tímabundiđ í fjóra sólarhringa frá kl. 00 mánudaginn 24. júní til kl. 24 fimmtudaginn 27. júní 2002, tímabundiđ í fjóra sólarhringa frá kl. 00 mánudaginn 15. júlí til kl. 24 fimmtudaginn 18. júlí 2002, tímabundiđ í fjóra sólarhringa frá kl. 00 ţriđjudaginn 6. ágúst til kl. 24 föstudaginn 9. ágúst 2002 og allsherjarverkfall frá kl. 00 mánudaginn 2. september 2002. Međ bréfi stefnanda til formanns Félags ungra lćkna, dagsettu 13. júní 2002, var verkfallsbođuninni mótmćlt sem ólögmćtri.

 

Málsástćđur og lagarök stefnanda

Stefnandi byggir á ţví ađ hann hafi um árabil gert kjarasamninga viđ stefnda, Lćknafélag Íslands, um störf lćkna hjá íslenska ríkinu. Lćknafélag Íslands sé fagstéttarfélag og grundvallist samningsađild ţess gagnvart stefnanda á ákvćđi 5. gr. laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna, sbr. og 4. gr. s.l. Hafi félagiđ samiđ viđ stefnanda vegna allra starfandi lćkna hjá íslenska ríkinu sem falla undir ákvćđi laga nr. 94/1986, ţ.e. annarra lćkna en ţeirra sem lögum samkvćmt njóta launa og annarra starfskjara samkvćmt ákvörđun kjaranefndar. Stefndi, Félag ungra lćkna, eigi ađild ađ Lćknafélagi Íslands og um réttarstöđu ţess fari samkvćmt lögum síđarnefnda félagsins, sbr. einkum 3. gr. ţeirra. Um kjaramál, stöđur og vinnudeilur sé m.a. fjallađ í ákvćđi VII. kafla sömu laga. Hafi Lćknafélag Íslands fariđ međ samningsađild f.h. Félags ungra lćkna allt frá stofnun ţess.

Međ undirritun kjarasamnings og atkvćđagreiđslu um hann hjá félagsmönnum Lćknafélags Íslands hafi komist á fullgildur kjarasamningur. Í samrćmi viđ ákvćđi laga nr. 94/1986 og meginreglur íslensks vinnuréttar hafi kjarasamningurinn bundiđ alla ţá sem Lćknafélag Íslands fór međ samningsađild fyrir, ţ.m.t. félagsmenn Félags ungra lćkna. Hafi svonefnd friđarskylda komist á milli sömu ađila viđ gildistöku kjarasamningsins.

Ţá er á ţví byggt ađ Lćknafélag Íslands hafi viđ upphaf samningaviđrćđna viđ stefnanda tilkynnt samninganefnd sína og hafi enginn fyrirvari eđa áskilnađur komiđ fram af hálfu félagsins um breytingar á samningsađild eđa samningsumbođi. Ţá hafi fulltrúi Félags ungra lćkna tekiđ ţátt í samningaviđrćđum frá upphafi til enda.  Lćknafélag Íslands hafi eitt fariđ međ samningsađild f.h. starfandi lćkna hjá íslenska ríkinu skv.l. mgr. 6. gr. laga nr. 94/1986. Í samrćmi 1. mgr. 7. gr. ţeirra laga  skuli starfsmađur, sem lögin taka til, eiga rétt til ţátttöku í stéttarfélagi sem fer međ samningsumbođ samkvćmt lögunum eftir ţví sem samţykktir viđkomandi félags segja til um. Enn fremur segi í nefndu ákvćđi ađ ađeins eitt félag fari međ umbođ til samninga fyrir hann. Lćknafélag Íslands hafi fariđ međ samningsađild f.h. allra starfandi lćkna hjá íslenska ríkinu viđ gerđ síđustu kjarasamninga og hafi félagsmenn Félags ungra lćkna átt ađild ađ umrćddu stéttarfélagi. Samkvćmt ţví hafi ekki ađrir en Lćknafélags Íslands fariđ međ eđa getađ fariđ međ samningsađild fyrir félagsmenn Félags ungra lćkna viđ gerđ kjarasamninga. Krefjist stefnandi ţví viđurkenningar á ţví ađ félagsmenn Félags ungra lćkna hafi falliđ undir samningsađild félagsins viđ gerđ síđustu kjarasamninga.

Ađ auki sé á ţví byggt ađ jafnvel ţó svo taliđ yrđi ađ einstakir félagsmenn eđa hópar innan Félags ungra lćkna hafi sagt sig úr Lćknafélagi Íslands á tilgreindu tímamarki séu félagsmenn ţess áfram bundnir af löglega gerđum kjarasamningum út gildistíma ţeirra. Hafi Félag ungra lćkna ţar ađ auki ekki gert reka ađ ţví ađ afturkalla samningsumbođ gagnvart Lćknafélagi Íslands fyrr en eftir ađ kjarasamningur var undirritađur. Um samningsađild lćkna fariđ alfariđ eftir ákvćđum laga nr. 94/1986 sem séu sérlög er gangi framar almennum 1ögum um sama efni.

Til viđbótar byggi stefnandi á ţví ađ hvorki hafi veriđ tilkynnt um samningsađild f.h. Félags ungra lćkna međ ţeim hćtti sem lög kveđa á um, sbr. t.d. ákvćđi 3. tl. 5. gr., sbr. ákvćđi 4. mgr. 6. gr. laga nr. 94/1986, né heldur hafi viđeigandi ráđstafanir veriđ gerđar um skipan samninganefndar o.fl., tilkynningar um samningsađild/umbođ o.ţ.h. í samrćmi viđ fyrirmćli ákvćđa l. mgr. 8. gr. laga nr. 94/1986 og samkvćmt ţví hafi stefnandi mátt ganga út frá ţví ađ engar breytingar hafi á orđiđ.

Leiđi framangreind sjónarmiđ og málsástćđur til ţess ađ bođađar vinnustöđvanir Félags ungra lćkna séu ólögmćtar.  Sé kjarasamningur ađila bindandi út gildistíma hans óháđ ţví hvort einstakir félagsmenn og/eđa hópar félagsmanna segi sig úr stefnda Lćknafélagi Íslands.

Ţar ađ auki byggi stefnandi á ađ Félag ungra lćkna hafi ekki uppfyllt skilyrđi til ađ öđlast samningsrétt á grundvelli 3. tl. 5. gr. laga nr. 94/1986, um kjarasamninga opinberra starfsmanna. Vísist nánar um ţau atriđi til ákvćđa 5., 6. og 7. gr. laga nr. 94/1986. Ţá hafi atkvćđagreiđsla félagsmanna Félags ungra lćkna ekki uppfyllt ađ öđru leyti skilyrđi laga nr. 94/1986. Í tilkynningu um vinnustöđvun hafi ekki komiđ fram hversu margir voru á kjörskrá og ţví vandséđ hvort skilyrđi til bođunar verkfalls hafi veriđ uppfyllt. Ţá hafi ţar ekki komiđ fram ađ atkvćđagreiđsla hafi veriđ leynileg í samrćmi viđ ákvćđi 15. gr. áđurnefndra laga. Enn fremur hafi verkfallsbođun ekki uppfyllt ţađ skilyrđi 16. gr. sömu laga ađ hafa veriđ tilkynnt ríkissáttasemjara og ţeim sem hún beinist gegn skemmst 15 sólarhringum áđur en hún skuli hefjast. Ađ lokum hafi ekki veriđ uppfyllt ţađ ţađ formskilyrđi ađ leggja fram kröfugerđ gagnvart stefnanda.

 

Málsástćđur og lagarök stefnda Lćknafélags Íslands

Stefndi reisir sýknukröfu á ţví ađ enginn ágreiningur sé milli hans, vegna félagsmanna í Lćknafélagi Íslands sem samningurinn taki, og stefnanda um nefndan kjarasamning ađila. Hafi stefndi eđa trúnađarmenn hans ekki rofiđ samninginn bođađ vinnustöđvun eđa ađgerđir, sem telja megi brot á friđarskyldu, enda sé af stefnanda hálfu ekki byggt á sök stefnda. Sé máli ţessu ranglega beint gegn stefnda og ţví krafist sýknu á grundvelli ađildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um međferđ einkamála.

 

Málsástćđur og lagarök stefnda Félags ungra lćkna

Stefndi byggir sýknukröfu á ţví ađ bođađ verkfall sé í einu og öllu lögmćt ađgerđ stéttarfélags sem hafi heimild til ađ gera kjarasamninga fyrir hönd  félagsmanna sinna og fylgja kröfum eftir međ verkfallsbođun. Vísist um ţann rétt til laga nr. 80/1938 og um rétt manna til ađ stofna stéttarfélög sem tryggđur sé í 1. mgr. 74. gr. stjórnarskrárinnar nr. 33/1944. Uppfylli Félag ungra lćkna öll skilyrđi sem lög nr. 80/1938 setja um stéttarfélög en Félag ungra lćkna sé landsfélag lćknakandidata og ţeirra sem fá lćknaréttindi á Íslandi. Međ útgöngu sinni úr samninganefnd Lćknafélags Íslands og síđar úr félaginu svo og breytingu á lögum Félags ungra lćkna beri viđsemjendum ađ ganga til viđrćđna viđ félagiđ um kjör félagsmanna.

Stefndi hafni ţví ađ um réttarsamband hans og stefnanda gildi lög nr. 94/1986. Bendi ekkert í lögunum til ađ lćknar falli undir lögin og um ţađ sé ekkert kveđiđ á um í kjarasamngi stefnanda viđ Lćknafélag Íslands eđa lögum ţess félags. Séu verulegar hömlur settar á ţađ í lögunum ađ önnur félög geti falliđ undir ţau. Ţar sem um sérlög sé ađ rćđa verđi ađ skýra ákvćđi ţeirra ađ ţessu leyti ţröngt.

Hafnađ sé ađ ţeir kjarasamningar, sem samninganefnd Lćknafélags Íslands gerđi viđ stefnanda og undirritađir voru 2. maí 2002, nái til Félags ungra lćkna og bindi ţá út samningstímann. Félag ungra lćkna hafi veriđ sjálfstćtt félag um árabil. Ţađ hafi veriđ ađili ađ Lćknafélagi Íslands og haft ţar réttarstöđu svćđafélags ţar til ţađ hafi breytt lögum sínum á aukaađalfundi félagsins í maí sl. og gerst ţannig ótvírćtt stéttarfélag á grundvelli laga nr. 80/1938.

Í 16. gr. laga Lćknafélags Íslands segi ađ félagiđ sjái um gerđ kjarasamninga lćkna í samráđi viđ svćđafélög og önnur félög lćkna eftir ţví sem viđ eigi hverju sinni. Hafi Félag ungra lćkna sérstöđu innan félaga Lćknafélags Íslands og séu fulltrúar fyrrnefnda félagsins tilnefndir af ţví en ekki af stjórn Lćknafélags Íslands eins og allir ađrir fulltrúar í samninganefndinni. Hafi Lćknafélag Íslands aldrei haft samráđ viđ Félags ungra lćkna í samrćmi viđ ákvćđi laganna međan á samningaviđrćđum stóđ og hafi fullrúar Félags ungra lćkna alltaf talađ sjálfir máli félagsins og lagt fram sérstakar kröfur einvörđungu fyrir unglćkna.

 

Niđurstađa

Mál ţetta á undir dómsvald Félagsdóms samkvćmt 1. og 2. tl. 1. mgr. 26. gr. laga nr. 94/1986 enda hefur lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna veriđ beitt um langt árabil um kjarasamninga lćkna viđ stefnanda, sbr. til dćmis dóm Félagsdóms í V. bindi dómasafns réttarins á bls. 82.

Í máli ţessu beinir stefnandi kröfum sínum sameiginlega bćđi ađ Lćknafélagi Íslands og Félagi ungra lćkna. Ágreiningslaust er međ ađilum ađ Lćknafélag Íslands á ekki í neinni deilu viđ stefnanda um um kjarasamning ţann sem stefnandi og stefndi gerđu međ sér 2. maí síđastliđinn. Jafnframt er óumdeilt ađ félagiđ stendur ekki ađ bođuđum vinnustöđvunum félagsmanna Félags ungra lćkna. Ţá upplýsti Oddur Steinarsson, formađur Félags ungra lćkna, fyrir dómi ađ enginn félagsmađur ţess hefđi veriđ í Lćknafélagi Íslands er bođađ var til umrćddra vinnustöđvana. Samkvćmt ţví, sem rakiđ hefur veriđ, á Lćknafélag Íslands enga ađild ađ ţeim ágreiningsefnum sem til úrlausnar eru í máli ţessu. Ber ţar af leiđandi ađ sýkna ţennan stefnda af kröfum stefnanda í máli ţessu vegna ađildarskorts, sbr. 2. mgr. 16. gr. laga nr. 91/1991 um međferđ einkamála.

Svo sem áđur greinir undirrituđu Lćknafélag Íslands og stefnandi nýjan kjarasamning 2. maí síđastliđinn, er leysti af hólmi eldri kjarasamning sem gilt hafđi frá 1. nóvember 1997 til 31. október 2000, en sá samningur hafđi veriđ framlengdur međ sérstöku samkomulagi frá 1. júlí 2001 til 28. febrúar 2002. Óumdeilt er ađ eldri kjarasamningar ţessara ađila tóku til allra félagsmanna Lćknafélags Íslands er störfuđu hjá stefnanda, ţar međ taliđ félagsmanna í Félagi ungra lćkna. Stóđ Lćknafélag Íslands ađ ţeirri samningagerđ í krafti ákvćđis 16. gr. félagslaga sinna sem kveđur á um ađ félagiđ sjái um gerđ kjarasamninga lćkna í samráđi viđ svćđafélög og önnur félög lćkna eftir ţví sem viđ eigi hverju sinni. Áttu félagsmenn Félags ungra lćkna ađild ađ ţeim viđrćđum sem međlimir í samninganefnd Lćknafélags Íslands, sbr. 8. gr. laga nr. 94/1986. Fór Lćknafélag Íslands ţví međ samningsađild fyrir félagsmenn Félags ungra lćkna viđ gerđ kjarasamningsins 2. maí 2002 viđ stefnanda og St. Franciskusspítala.

Samkvćmt 2. mgr. 3. gr. laga nr. 80/1938 um stéttarfélög og vinnudeilur hćttir međlimur stéttarfélags ađ vera bundinn af samţykktum félags síns og sambands ţess ţegar hann samkvćmt reglum félagsins er farinn úr ţví en samningar ţeir, sem hann hefur orđiđ bundinn af, á međan hann var félagsmađur, eru skuldbindandi fyrir hann međan hann vinnur ţau störf, sem samningurinn er um, ţar til ţeir fyrst gćtu falliđ úr gildi samkvćmt uppsögn. Sömu reglu gćtir í 4. mgr. 6. gr. laga 94/1986 ţar sem kveđiđ er á um ađ stofnun nýs félags, sem fer međ samningsumbođ samkvćmt 5. gr. laganna, skuli tilkynna ađ minnsta kosti ţremur mánuđum fyrir lok samningstímabils ţeirra kjarasamninga sem gilda fyrir félagsmenn hins nýja félags. Er ofangreindur kjarasamningur var undirritađur var Félag ungra lćkna samkvćmt 2. grein ţágildandi félagslaga sinna sjálfstćtt ađildarfélag Lćknafélags Íslands og naut réttarstöđu svćđafélags en var hins vegar ekki samkvćmt félagslögum sínum stéttarfélag sem var lögformlegur samningsađili um kaup og kjör međlina sinna, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 80/1938.

Af framansögđu leiđir ađ félagsmenn Félags ungra lćkna eru bundnir af kjarasamningi stefnanda og stefnda, Lćknafélags Íslands, sem tók gildi ţann 2. maí 2002, ţar til hann rennur út 31. desember 2005. Felur sú samningsskuldbinding  ekki í sér skerđingu á frjálsri stéttarfélagsađild ţeirra.

Međ vísan til ofanritađs eru bođađar vinnustöđvanir Félags ungra lćkna í andstöđu viđ 14. gr. laga nr. 94/1986 og ţví ólögmćtar.

Eftir úrslitum málsins er rétt ađ stefnandi greiđi stefnda, Lćknafélagi Íslands, málskostnađ, sem ákveđst 100.000 krónur, og ađ stefndi, Félag ungra lćkna, greiđi stefnanda málskostnađ sem ákveđst 200.000 krónur.

 

Dómsorđ:

Stefndi, Lćknafélag Íslands, er sýkn af kröfum stefnanda, fjármálaráđherra f.h. ríkissjóđs, í máli ţessu.

Stefndi, Lćknafélag Íslands, fór međ samningsađild fyrir félagsmenn stefnda, Félags ungra lćkna, viđ gerđ kjarasamnings 2. maí 2002 viđ stefnanda og St. Franciskusspítala.

Bođađar vinnustöđvanir félagsmanna stefnda, Félags ungra lćkna, eru ólögmćtar.

Stefnandi greiđi stefnda, Lćknafélagi Íslands, 100.000 krónur í málskostnađ.

Stefndi, Félag ungra lćkna, greiđi stefnanda 200.000 krónur í málskostnađ.

 



ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica cmscms - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.