Eldri úrskurðir og álit kærunefndar húsnæðismála

Mál nr. 1/2007

23.11.2007

Föstudaginn 23. nóvember 2007 var á fundi kærunefndar húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 1/2007:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

 

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru dagsettri 23. júlí 2007, sem barst kærunefnd 7. ágúst sama ár, skotið til nefndarinnar ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, dagsettri 17. júlí 2007, þar sem kæranda er synjað um niðurfellingu eftirstöðva skulda við Íbúðalánasjóð.

 

I. Málsmeðferð

Með bréfi, dagsettu 24. september 2007, óskaði kærunefnd húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði, einnig að tekin yrði afstaða til kærunnar. Greinargerð kærða barst með bréfi dagsettu 8. október 2007. Með bréfi dagsettu 18. október 2007 var greinargerð send kæranda til kynningar. Frekari athugasemdir bárust frá kæranda með bréfi dagsettu 24. október 2007.

 

II. Helstu málsatvik og kæruefni

Með bréfi, dagsettu 23. júní 2007 óskaði kærandi eftir því að eftirstöðvar veðskuldabréfs með veði í eign móður hennar að X yrðu felldar niður.

 

III.Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi tekið lánið vegna greiðsluerfiðleika árið1991 og það hafi verið mjög erfitt að greiða af því allan þennan tíma. Ef lánið yrði uppreiknað fram til dagsins í dag sæi hún ekki annað en að hún væri búin að greiða lánið fyrir löngu síðan. Hún greinir frá því að hún sé 100% öryrki síðan 2001 með lágar tekjur.

 

IV. Sjónarmið kærða

Kærði bendir á að í 47. gr. laga nr. 44/1998 um húsnæðismál sé kveðið á um heimildir Íbúðalánasjóðs til afskrifta útistandandi veðkrafna. Afskriftarheimildir sjóðsins á lánum til einstaklinga nái aðeins til veðkrafna sem glatað hafa veðtryggingu við nauðungarsölu og tilvika þar sem íbúð hafi eyðilagst af óviðráðanlegum orsökum. Lagaheimildir standi ekki til þess að fallist sé á niðurfellingu eftirstöðva lánsins á þeim forsendum sem lagðar eru til grundvallar beiðninni.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál nr. 44/1998. Hlutverk kærunefndar húsnæðismála er að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Kærandi fer fram á niðurfellingu eftirstöðva veðskuldabréfs nr. Z. Veðskuldabréfið er tryggt með veði í X og var tekið árið 1991. Kærandi gerir kröfu um niðurfellinguna á þeim forsendum að hún hafi litlar tekjur og sé öryrki frá árinu 2001. Lánið hafi hún tekið á sínum tíma sem greiðsluerfiðleikalán og geti ekki betur séð en miðað við lánið uppreiknað til dagsins í dag þá sé hún sé búin að greiða það upp fyrir löngu síðan.

Heimild Íbúðalánasjóðs til að afskrifa útistandandi veðkröfur sjóðsins skv. 1. mgr. 47. gr. laga nr. 44/1998 er bundin við það að veðtrygging útistandandi skuldar hafi glatast við nauðungarsölu íbúða eða þegar íbúð sem stendur að veði kröfu hefur eyðilagst af óviðráðanlegum orsökum.

Í máli þessu er framangreint ákvæði eina heimild laga um húsnæðismál nr. 44/1998 fyrir stjórn sjóðsins til að fella niður eftirstöðvar skulda.

Með því að hvorugt þessara atvika á við í því tilviki sem hér er til umfjöllunar er ekki lagaheimild til niðurfellingar eftirstöðvar skulda kæranda við Íbúðalánasjóð.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

Kæru A um að synjun Íbúðalánasjóðs um niðurfellingu eftirstöðva láns verði felld úr gildi er hafnað.

 

Þuríður Jónsdóttir, formaður

Ástráður Haraldsson

Vífill Oddsson



 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.