Eldri úrskurðir og álit kærunefndar húsnæðismála

Mál nr. 2/2009

21.9.2009

Mánudaginn 21. september 2009 var á fundi kærunefndar húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 2/2009:

A

gegn

Íbúðalánasjóði

 

og kveðinn upp svohljóðandi

 

Ú R S K U R Ð U R:

A, hér eftir nefndur kærandi, hefur með kæru, dagsettri 24. júní 2009, skotið til nefndarinnar ákvörðun Íbúðalánasjóðs, hér eftir nefndur kærði, dagsettri 12. júní 2009, þar sem kæranda var synjað um viðbótarlán umfram hámarkslán.

 

I. Málsmeðferð

Með bréfi, dagsettu 1. júlí 2009, óskaði kærunefnd húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá Íbúðalánasjóði, einnig að tekin yrði afstaða til kærunnar. Greinargerð kærða barst með bréfi dagsettu 14. júlí 2009. Með bréfi dagsettu 15. júlí 2009 var greinargerðin send kæranda til kynningar. Ekki bárust frekari athugasemdir frá kæranda.

 

II. Helstu málsatvik og kæruefni

Kærandi tók lán að fjárhæð 17,2 milljónir króna í júlí 2007. Gera þurfti endurbætur á íbúðinni og samkvæmt öllum gildandi reglum og viðmiðum átti að vera hægt að fá viðbótarlán um leið og hægt væri að sýna fram á að þeim væri lokið. Endurbæturnar kostuðu 1,6 milljónir króna sem fjármagnaðar voru á yfirdrætti á tékkareikningi sem átti að vera tímabundin ráðstöfun þar til forsendur væru til að fá endurmat á íbúðina.

Hinn 4. maí 2009 sótti kærandi um aukalán vegna breytinga á húsnæði til kærða. Erindi kæranda var hafnað með bréfi, dagsettu 11. maí 2009, með vísan til reglugerðar um lánshlutfall og fjárhæð ÍLS-veðbréfa, nr. 540/2006. Kærandi sendi því stjórn kærða erindi, dags. 4. júní 2009, þar sem hann óskaði eftir að umsókn hans yrði tekin að nýju til umfjöllunar til að komast hjá vanskilum af hálfu kæranda.

Á fundi stjórnar kærða 10. júní 2009 var erindi kæranda tekið fyrir. Afgreiðsla stjórnarinnar var sú að hafna erindinu með vísan til reglugerðarákvæða um hámarkslán og fjárhæð ÍLS-veðbréfa.

Í kjölfarið sendi kærandi erindi til kærunefndar húsnæðismála, dags. 24. júní 2009, þar sem hann óskar eftir að ákvörðun stjórnar kærða verði tekin til endurskoðunar.

 

III. Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að með öllum þeim sviptingum sem urðu í efnahagslífinu hafi tvennt gerst, annars vegar hækkaði lánið yfir viðmiðunarmörk hámarkslána kærða vegna breytinga á vísitölu og hins vegar fór lánsupphæðin yfir þau viðmiðunarmörk sem veðsetning af fasteignaverði heimilar bæði hjá bönkum og kærða. Vegna þessara aðstæðna hafi lokast sá möguleiki að fá fjármagn með fasteignaveði í bönkum og sé því lánið enn á yfirdráttarvöxtum á bankareikningi. Vaxtagreiðslur af yfirdrætti séu hærri en afborgun af húsnæðisláni myndi vera.

Kærandi sé búinn að sýna fram á vilja sinn til að halda öllu sínu í skilum þrátt fyrir atvinnuleysi og hækkun á öllum útgjöldum. Hann sé fluttur úr íbúðinni til að hafa af henni leigutekjur til að halda öllu í skilum.

Ástæður sem liggi til grundvallar höfnun á lánveitingu, um 20 milljóna króna hámarkslán, séu ekki í höndum kæranda. Hann geti aðeins gert sitt besta til að koma málum þannig fyrir að hann geti staðið undir greiðslubyrði til frambúðar. Kærandi telur ekki um kæruleysi eða offjárfestingar að ræða af sinni hálfu þar sem lánið sem hann tók hafi verið 17,2 milljónir króna og taldi hann sig hafa svigrúm til framkvæmda upp að 20 milljónum króna.

Kærandi hafi sent stjórn kærða erindi þar sem ekki virðist heimild til að taka neina afstöðu til umsóknarinnar með tilliti til aðstæðna, aðeins sé sagt að hámarkslán sé 20 milljónir króna. Kærandi hafi óskað eftir að stjórnin kæmi með tillögu að öðru úrræði ef erindi hans yrði hafnað, en engin tillaga barst um úrræði, aðeins höfnun á viðbótarlánveitingu.

Kærandi líti svo á að hann hafi gert allt sem í sínu valdi standi til að standa rétt að málum en óskar eftir að beiðni sín verði tekin til endurákvörðunar af hálfu kærunefndarinnar.

 

IV. Sjónarmið kærða

Kærði bendir á að í 4. gr. reglugerðar um lánahlutfall og fjárhæð ÍLS-veðbréfa, nr. 540/2006, með síðari breytingum, sé fjallað um hámark lána vegna viðauka og til endurbóta, sbr. einkum breytingaákvæði í reglugerðum nr. 587/2007 og nr. 575/2008.

Kærði telur að ekki verði vikið frá skýrum regluákvæðum sem meðal annars takmarka heildarlánveitingum við 20 milljónir króna og leita verði hugsanlegra lausna á fjárhagsvanda kæranda eftir öðrum leiðum sem almennt standi til boða.

 

V. Niðurstaða

Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk kærunefndar húsnæðismála er að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.

Með synjun sinni vísaði Íbúðalánasjóður til 4. gr. reglugerðar um lánshlutfall og fjárhæð ÍLS-veðbréfa, nr. 540/2006, með síðari breytingum, sem hljóðar svo:

Lán skv. VII. kafla reglugerðar um ÍLS-veðbréf og íbúðabréf, ásamt öllum uppfærðum lánum sem á undan hvíla, skal rúmast innan 80% af matsverði viðkomandi íbúðar.

Fjárhæð láns samkvæmt þessari grein og uppreiknaðra áhvílandi lána Íbúðalánasjóðs, má samanlagt ekki nema hærri fjárhæð en [20.000.000 kr.] Aukalán til einstaklinga með sérþarfir skerða ekki þetta hámark.

Útgefið ÍLS-veðbréf samkvæmt þessari grein skal að lágmarki nema [400.000 kr.]

Upphaflega sótti kærandi um aukalán til einstaklinga með sérþarfir með umsókn dagsettri 4. maí 2009. Með bréfi, dagsettu 11. maí 2009, synjaði Íbúðalánasjóður kæranda um skuldabréfaviðskipti því samkvæmt framangreindri reglugerð sé hámarkslánsfjárhæð 20.000.000 krónur og að sjóðurinn hefði því ekki heimild til þess að lána umfram þá fjárhæð.

Þá sendi kærandi Íbúðalánasjóði bréf, dagsett 4. júní 2009, þar sem hann óskaði eftir að stjórn Íbúðalánasjóðs tæki að nýju til umfjöllunar umsókn sína um aukalán. Íbúðalánasjóður synjaði erindi kæranda með bréfi, dagsettu 12. júní 2009, með vísan til reglugerðarákvæða um hámarkslán og fjárhæð ÍLS-veðbréfa.

Kærunefnd húsnæðismála telur með vísan til framangreinds ákvæðis reglugerðar nr. 540/2006 ekki efni til að gera athugasemdir við afgreiðslu Íbúðalánasjóðs.

 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð :

Kæru A, um að synjun Íbúðalánasjóðs um viðbótarlán umfram hámarkslán verði felld úr gildi, er hafnað.

 

Þuríður Jónsdóttir, formaður

Ástráður Haraldsson

Vífill Oddsson



 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica útlitshönnunútlitshönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.