Eldri úrskurðir og álit kærunefndar húsnæðismála
Mál nr. 8/2009
Föstudaginn 26. febrúar 2010 var á fundi kærunefndar húsnæðismála tekið fyrir mál nr. 8/2009:
gegn
húsnæðisnefnd Kópavogs
og kveðinn upp svohljóðandi
Ú R S K U R Ð U R:
A og B, hér eftir nefnd kærendur, hafa með kæru, dagsettri 27. október 2009, skotið til nefndarinnar ákvörðun húsnæðisnefndar Kópavogs, hér eftir nefnd kærði, um riftun á leigusamningi við kærendur og útburð.
I. Málsmeðferð
Með bréfi, dagsettu 2. nóvember 2009, óskaði kærunefnd húsnæðismála eftir upplýsingum um meðferð málsins og frekari gögnum ef þau væru fyrir hendi hjá húsnæðisnefnd Kópavogs, einnig að tekin yrði afstaða til kærunnar. Greinargerð kærða barst með bréfi dagsettu 16. nóvember 2009. Með bréfi nefndarinnar, dagsettu 17. nóvember 2009, var greinargerðin send kærendum til kynningar. Frekari athugasemdir af hálfu kærenda bárust 4. desember 2009 sem sent var húsnæðisnefnd Kópavogs til kynningar með bréfi dagsettu sama dag. Hinn 18. desember 2009 barst bréf húsnæðisnefndar Kópavogs, dagsett 16. desember 2009, þar sem upplýst var að ekki yrðu gerðar frekari athugasemdir.
Húsnæðisnefnd Kópavogs var sent erindi kærunefndar með bréfi, dagsettu 22. desember 2009, og óskað frekari upplýsinga og gagna sem bárust með bréfi, dagsettu 12. janúar 2010. Kærendum var sent afrit af bréfi húsnæðisnefndar Kópavogs og gögnum með bréfi kærunefndar, dagsettu 13. janúar 2010.
Þá liggur fyrir í málinu úrskurður Héraðsdóms Reykjaness í máli aðila þessa máls sem kveðinn var upp Z 2010.
II. Helstu málsatvik og kæruefni
Kærendur leigðu íbúð að X nr. 26 í Kópavogi af kærða með tímabundnum leigusamningi sem rennur út 1. mars 2010. Með bréfi TCM innheimtu fyrir hönd kærða, dagsettu 20. október 2009, var leigusamningi við kærendur rift, en þá hafði með viku fyrirvara verið skorað á kærendur að greiða húsaleiguskuld sína. Með aðfararbeiðni, dagsettri 29. október 2009, var þess krafist af hálfu kærða að kærendur yrðu bornir út úr húsnæðinu að X nr. 26. Áður en kærendum barst aðfararbeiðnin kærðu þeir málið til kærunefndar húsnæðismála með bréfi, dagsettu 27. október 2009.
III. Sjónarmið kærenda
Kærendur telja að kærði hafi brotið gegn stjórnsýslureglum með því að rifta húsaleigusamningi þeirra með aðeins viku fyrirvara vegna nokkurra mánaða vanskila á leigu og kröfu kærða um rýmingu án tafar og aðför með útburði. Þá hafi kærði í engu gætt að rétti kærenda við þær aðstæður sem ríkja í þjóðfélaginu í dag.
Máli sínu til stuðnings vísa kærendur meðal annars til húsaleigulaga, stjórnsýslulaga, húsaleigulaga, laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu.
IV. Sjónarmið kærða
Kærði vísar meðal annars til þess að kærendur hafi hvorki greitt húsaleiguskuld sína né samið um greiðslu skuldarinnar. Útburðarkrafan hafi verið byggð á riftun á húsaleigusamningi á grundvelli vanskila á húsaleigu sem hafi orðið af hálfu kærenda, sbr. heimild í 61. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994.
V. Niðurstaða
Málskot kæranda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál, nr. 44/1998. Hlutverk kærunefndar húsnæðismála er að skera úr ágreiningsmálum er kunna að rísa vegna ákvarðana Íbúðalánasjóðs og húsnæðisnefnda, sbr. 1. mgr. 41. gr. laganna.
Kærunefnd lítur svo á að í kröfu kærenda felist að nefndin ógildi ákvörðun húsnæðisnefndar Kópavogs um riftun á leigusamningi kærenda við húsnæðisnefndina. Kópavogs. Kærði telur hins vegar að hann hafi fulla heimild til að fara fram á útburð, enda hafi kærendur verið komnir í talsverða húsaleiguskuld við hann.
Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um húsnæðismál getur málsaðili skotið ákvörðun húsnæðisnefndar eða þeirrar nefndar á vegum sveitarfélags sem falið hefur verið verkefni húsnæðisnefndar til kærunefndar húsnæðismála.
Kærunefnd gerir ekki athugasemdir við það að húsnæðisnefnd Kópavogs hafi framselt yfirmanni húsnæðisdeildar Félagsþjónustu Kópavogs umboð til að annast verkefni nefndarinnar. Jafnframt hafa verið settar verklagsreglur vegna kvartana um leigjendur hjá húsnæðisnefnd Kópavogs og riftunar leigusamninga.
Kærunefnd telur að ákvörðun húsnæðisnefndarinnar hafi verið í samræmi við lög um húsnæðismál og framangreindar verklagsreglur.
Auk þessa hefur úrskurður gengið fyrir Héraðsdómi Reykjaness þar sem að nokkru er fjallað um sömu málsástæður og máli skipta í þessu máli. Með úrskurðinum var húsnæðisnefndinni heimilað að rifta húsaleigusamningi kærenda og bera þá út úr húsnæðinu, sbr. úrskurð nr. Y sem kveðinn var upp Z 2010.
Með vísan til alls framangreinds telur kærunefnd húsnæðismála ekki tilefni til að hnekkja ákvörðun húsnæðisnefndar Kópavogs og ber því að staðfesta ákvörðun nefndarinnar.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Ákvörðun húsnæðisnefndar Kópavogs í máli A og B, vegna riftunar á leigusamningi og útburði, er staðfest.
Þuríður Jónsdóttir, formaður
Ástráður Haraldsson
Vífill Oddsson


