Eldri úrskurðir og álit kærunefndar húsnæðismála
Mál nr. 10/2001
X gegn Íbúðalánasjóði
Mánudaginn 11. mars 2002 var á fundi kærunefndar húsnæðismála tekið fyrir mál
nr. 10/2001:
X
gegn
Íbúðalánasjóði
og kveðinn upp svohljóðandi
Ú R S K U R Ð U R :
Y hefur fyrir hönd X, til heimilis að B með kæru, dags. 15. nóvember 2001, skotið til kærunefndar húsnæðismála synjun Íbúðalánasjóðs á erindi þar sem þess er óskað að Íbúðalánasjóður heimili X að yfirtaka áhvílandi lán sjóðsins úr verkamannabústaðakerfinu án kostnaðar með óbreyttum lánaskilmálum. Er beiðnin rökstudd með því að erfðaréttur kæranda verði virtur eins og hann var samkvæmt lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 51/1980. Lánin hvíla á félagslegri eignaríbúð. Íbúðin er eign dánarbús móður kæranda, en því hefur ekki verið skipt.
I. Málsmeðferð
Kærunefnd húsnæðismála leitaði eftir eftirfarandi gögnum: Greinargerð Íbúðalánasjóðs, dags. 18. desember 2001. Umboðsmanni kærenda var sent afrit hennar og gefinn kostur á að gera athugasemdir við hana. Athugasemdir bárust nefndinni 6. janúar 2002.
Kærunefnd húsnæðismála tók mál þetta fyrir á fundum sínum 7. desember 2001, 21. febrúar 2002 og í dag.
II. Helstu málsatvik og kæruefni
Hinn 12. október 2001 ritaði umboðsmaður kæranda bréf til Íbúðalánasjóðs þar sem óskað var eftir að X fái, vegna sérstakra aðstæðna, að yfirtaka lán Íbúðalánasjóðs úr verkamannabústaðakerfinu án kostnaðar með óbreyttum lánaskilmálum.
Forsaga málsins er sú að X býr í félagslegri eignaríbúð og hefur átt þar lögheimili í tæp 17 ár hjá móður sinni, sem var einstæð móðir. Hún lést eftir langvarandi veikindi. C lét eftir sig fyrrgreinda félagslega eignaríbúð sem keypt var árið 1984 og á henni hvílir lán úr félagslega kerfinu. Íbúðin er nú eign dánarbús hennar.
Umboðsmaður kæranda óskaði eftir að erfðaréttur kæranda yrði virtur og að Íbúðalánasjóður heimili nafnabreytingu á lánunum á fasteigninni án kostnaðar fyrir kæranda og á óbreyttum kjörum frá því sem nú er þar sem hann taldi að eðlilegt sé að kærandi búi við sömu aðstæður og ríktu áður en móðir hans lést. Kærandi telur að stjórnvöldum beri að leyfa nafnabreytinguna sökum þess að samkvæmt lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 51/1980, sem voru í gildi þegar C keypti íbúðina, sé erfðaréttur á milli C og kæranda.
Íbúðalánasjóður svaraði með bréfi, dags. 1. nóvember 2001, og var beiðninni synjað.
III. Sjónarmið kæranda
Upplýsingar um afstöðu kæranda eru byggðar á kæru, dags. 15. nóvember 2001, og athugasemdum, dags. 6. desember 2001. Í kæru kemur m.a. fram að kærandi fari fram á að erfðaréttur X verði viðurkenndur í samræmi við lög um Húsnæðisstofnun ríkisins, nr. 51/1980, en þau voru í gildi þegar íbúðin var keypt árið 1984. Kærandi telur að ákvæðið um erfðaréttinn, sbr. 70. gr., sbr. 19. gr. laga nr. 58/1995 feli í sér eignaupptöku í þeim tilvikum sem betri réttur hafði stofnast eins og gerðist í tilviki X árið 1984. Breytingin geti ekki gilt gagnvart þeim sem keyptu félagslegar eignaríbúðir fyrir setningu laganna þar sem eignaupptaka sé óheimil nema í undantekningartilfellum sem eiga ekki við í máli þessu.
Samkvæmt bréfi Íbúðalánasjóðs eigi kærandi rétt á húsbréfaláni, en hann geti ekki staðið undir því með 60.000 kr. námslán mánaðarlega.
Í athugasemdum umboðsmanns kæranda, dags. 6. janúar 2002, er þess m.a. krafist að viðurkennt sé að X erfi fasteignina og heimiluð verði nafnaskipti á íbúðinni.
IV. Sjónarmið varnaraðila
Kærunefnd húsnæðismála barst greinargerð Íbúðalánasjóðs vegna kærunnar með bréfi, dags. 18. desember 2001. Í greinargerðinni kemur m.a. fram að Húsnæðisstofnun ríkisins, forveri Íbúðalánasjóðs, hafði ekkert um úthlutun félagslegra íbúða að segja, heldur fjallaði einungis um atriði, sem lutu að lánveitingu úr Byggingarsjóði verkamanna. Lánveiting eða yfirtaka láns byggði þannig á úthlutun/sölu íbúðar hjá sveitarfélagi eða húsnæðisnefnd sveitarfélags, það er algjörlega bundin eignarhaldi á félagslegri íbúð.
V. Niðurstaða
Málskotsheimild kærenda er reist á 1. mgr. 42. gr. laga, nr. 44/1998, um húsnæðismál, sbr. 2. gr. breytingalaga, nr. 77/2001, og II. kafla reglugerðar nr. 459/1999.
Mál þetta varðar þá kröfu kæranda að Íbúðalánasjóður heimili kæranda að yfirtaka áhvílandi lán sjóðsins úr verkamannabústaðakerfinu án kostnaðar með óbreyttum lánaskilmálum. Er því í raun verið að óska eftir að rétturinn til félagslegu lánanna erfist til sonar þinglýsts eiganda sem er látin.
Með gildistöku laga, nr. 44/1998, um húsnæðismál hinn 1. janúar 1999 var hið félagslega íbúðarkerfi samkvæmt lögum nr. 97/1993 lagt niður. Í athugasemdum með frumvarpi til laganna kemur fram að hinu eldra kerfi verði þó viðhaldið á meðan innlausn íbúða samkvæmt því kerfi stendur yfir. Af þessum sökum voru sett ákvæði til bráðabirgða í IV. kafla laga nr. 44/1998 um skil þeirra laga og laga nr. 97/1993, meðal annars hvað varðar réttarstöðu eigenda félagslegra eignaríbúða. Í 3. mgr. bráðabirgðaákvæðisins er kveðið á um að 70. gr. laga nr. 97/1993 eigi við eftir því sem við geti átt og með þeim takmörkunum sem greinir í lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998. Í 4. mgr. 70. gr. laga nr. 97/1993, sem héldu gildi sínu samkvæmt fyrrgreindu bráðabirgðaákvæði kemur eftirfarandi fram:
Réttur kaupanda sem stofnast við kaupsamning á félagslegri eignaríbúð er persónulegur réttur. Hann er ekki framseljanlegur og erfist ekki...
Hér er um að ræða óundanþæga lagareglu, sem kemur í veg fyrir að réttur Eyrúnar til félagslegu lánanna sem hvíla á fasteigninni, erfist til sonar hennar og að um nafnaskipti á fasteigninni geti verið að ræða. Dómur héraðsdóms Reykjaness frá 13. mars 2001 staðfestir þennan skilning á lagaákvæðinu.
Þá lítur nefndin svo á að sú fullyrðing umboðsmanns kæranda að gagnstæð regla hafi gilt að eldri tíðar rétti standist ekki.
Kærunefnd húsnæðismála telur því með vísan til framanritaðs að Íbúðalánasjóður hafi komist að réttri niðurstöðu miðað við núgildandi lagaákvæði um sölu og ráðstöfun félagslegra eignaríbúða. Einnig lítur kærunefnd húsnæðismála svo á að málsmeðferð Íbúðalánasjóðs hafi verið í samræmi við stjórnsýslulög, nr. 37/1993, og gerir því nefndin ekki athugasemdir við ákvörðun Íbúðalánasjóðs frá 1. nóvember 2001.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð :
Kærunefnd húsnæðismála gerir ekki athugasemdir við niðurstöðu Íbúðalánasjóðs frá 1. nóvember 2001 í máli X, vegna félagslegrar eignaríbúðar.
Þuríður Jónsdóttir formaður
Ástráður Haraldsson
Vífill Oddsson


