Úrskurđarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađs­ađgerđa

Mál nr. 64/2009

9.12.2009

Úrskurđur

Á fundi úrskurđarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađsađgerđa ţann 9. desember 2009 var kveđinn upp svohljóđandi úrskurđur í máli A nr. 64/2009.

1.

Málsatvik og kćruefni

Málsatvik eru ţau ađ A, sótti um atvinnuleysisbćtur ţann 29. apríl 2009 međ rafrćnni umsókn sem var stađfest skriflega ţann 4. júní 2009. Kćrandi krefst atvinnuleysisbóta fyrir tímabiliđ 27. apríl 2009 til 31. maí 2009 og kćrđi synjun Vinnumálastofnunar til úrskurđarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađsađgerđa međ erindi, dags. 10. júní 2009. Vinnumálastofnun krefst ţess ađ hin kćrđa ákvörđun verđi stađfest.

Í vottorđi um skólavist vegna kćranda, dags. 3. júní 2009, kemur fram ađ hún er nemandi í B-deild Háskólans í Reykjavík. Ţar er ţađ vottađ ađ hún var skráđ í 8 ECTS einingar á vorönn 2009 og lauk prófi 24. apríl 2009. Hún er skráđ í 22 einingar á haustönn 2009. Kćrandi kveđst hafa lokiđ 40 ECTS einingum á skólaárinu 2008–2009 en ţađ sé nóg til ađ uppfylla lágmarksskilyrđi til ţess ađ fá námslán hjá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Af hálfu kćranda kemur fram ađ hún hafi ávallt veriđ í hlutastörfum međ náminu og í fullri vinnu á sumrin. Seinasta starf kćranda hafi veriđ hjá X en kćranda hafi veriđ sagt upp ţar vegna samdráttar í nóvember 2008.

Kćrandi segir reglur um háskólanema hafi veriđ birtar ţann 12. maí 2009 á heimasíđu Vinnumálastofnunar ţar sem fram hafi komiđ ađ háskólanemar myndu fá atvinnuleysisbćtur frá 1. júní. Ţar sem kćrandi hafi veriđ búin í skólanum 24. apríl 2009 og eingöngu veriđ í einum áfanga hafi námslánin fyrir vorönnina veriđ 199.027 kr. ţannig ađ ef miđađ sé viđ ađ námslánin ćttu ađ duga fyrir janúar til maí ţá sé sú upphćđ 49.756 kr. á mánuđi. Kćrandi kveđst hafa sótt um vinnu á mörgum vinnustöđum en alltaf fengiđ neitun. Hún hafi ţví sinnt ţeirri skyldu sinni ađ vera í atvinnuleit. Hún hafi veriđ atvinnulaus og ekki í skóla frá 27. apríl til 31. maí 2009 og ţví algjörlega tekjulaus á ţví tímabili. Kćrandi kveđur kćru ţessa lagđa fram ţar sem henni ţyki ekki rétt ađ setja alla háskólanema undir einn hatt og biđur hún ţví um undanţágu frá reglum um háskólanema á grundvelli ţeirra óvenjulegu ađstćđna sem hún sé í. Tilgangur reglna um háskólanemendur sé ađ koma til móts viđ ţá sem ekki hafa fengiđ starf í sumar vegna ástandsins í samfélaginu eftir hrun bankanna. Ţađ sé eđlilegt ađ kćrandi eigi möguleika á atvinnuleysisbótum frá ţví hún lauk skólanum í apríl ţví ađ hún hafi veriđ búin međ ţá vinnu sem hún ţurfti ađ leysa af hendi til ađ fá námslán frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Frá 27. apríl hafi kćrandi veriđ á vinnumarkađi og samkvćmt reglum um háskólanema ćtti hún ţá ađ eiga rétt til atvinnuleysisbóta ţar sem hún hafi hvorki veriđ í vinnu né í skóla á umrćddu tímabili. Hefđi kćrandi veriđ í skóla í maí hefđi hún fengiđ hćrri námslán frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna og ekki veriđ í vandrćđum sökum launaleysis.

Í greinargerđ Vinnumálastofnunar, dags. 15. september 2009, er vísađ til 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Fram kemur ađ ákvćđi lagagreinarinnar sé mjög skýrt og taki berum orđum fram ađ sá sem stundi nám sé ekki tryggđur á sama tímabili. Í athugasemdum viđ 52. gr. í frumvarpi ţví sem varđ ađ lögum um atvinnuleysistryggingar komi međal annars fram sú meginregla ađ námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Ţađ sé ljóst af tilvitnuđu ákvćđi ađ ţađ sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar ađ tryggja námsmönnum framfćrslu međan ţeir stunda nám, heldur skuli námsmenn almennt leita til Lánasjóđs íslenskra námsmanna. Samkvćmt úthlutunarreglum Lánasjóđs íslenskra námsmanna skuli grunnframfćrsla sýna lánsţörf námsmanns á námstíma sem teljist samkvćmt reglum lánasjóđsins níu mánuđir. Grunnframfćrsla samkvćmt úthlutunarreglum sjóđsins sé ţannig ákveđin sem 1/9 af mismuni framfćrslugrunnsins, eins og hann sé á hverjum tíma og ráđstöfunartekna námsmanns. Ţá byggist útreikningur á grunnframfćrslu á ţeim ECTS einingum sem námsmađur lýkur. Vinnumálastofnun hafi litiđ svo á ađ námsmenn geti ekki átt rétt á atvinnuleysisbótum fyrir sama tímabil og ţeir njóti greiđslna frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Viđ gerđ verklagsreglna um námsmenn hafi ţví veriđ horft til ţess ađ ţeir sem stunda lánshćft nám á vorönn og skráđir séu í áframhaldandi nám eftir sumariđ, eigi rétt á framfćrslu frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna níu mánuđi af árinu. Ţađ sé eindregin afstađa Vinnumálastofnunar ađ ţađ komi ekki til aukins réttar einstaklings til greiđslu atvinnuleysistrygginga ef ţeir velja ađ vera í svo litlu námi ađ ţađ skerđi framfćrslu ţeirra hjá Lánasjóđi íslenskra námsmanna.

Kćranda var međ bréfi úrskurđarnefndarinnar, dags. 18. september 2009, sent afrit af greinargerđ Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á ađ koma á framfćri frekari athugasemdum fyrir 2. október 2009. Kćrandi nýtti sér ekki ţann rétt.

 

2.

Niđurstađa

Í 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segir ađ hver sá sem stundar nám, sbr. c-liđ 3. gr., teljist ekki tryggđur á sama tímabili enda sé námiđ ekki hluti vinnumarkađsađgerđa samkvćmt ákvörđun Vinnumálastofnunar. Kćrandi var skráđ í nám skv. c-liđ 3. gr. á ţví tímabili sem hún hefur sótt um atvinnuleysisbćtur fyrir. Samkvćmt skýru ákvćđi 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar telst kćrandi ekki tryggđ og á ekki rétt á atvinnuleysisbótum.

Samkvćmt upplýsingum frá kćranda fékk hún námslán frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna til loka maí 2009. Ţegar af ţeirri ástćđu kemur ekki til álita ađ meta stöđu hennar sérstaklega samkvćmt 2. eđa 3. mgr. 52. gr. laganna.

Sú ákvörđun Vinnumálastofnunar ađ stöđva greiđslur atvinnuleysisbóta til kćranda er stađfest.

 

Úrskurđarorđ

Sú ákvörđun Vinnumálastofnunar frá 12. júní 2009 ađ synja A um atvinnuleysisbćtur fyrir tímabiliđ 27. apríl til 31. maí 2009 er stađfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formađur

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



 

Úrskurđasafn




ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.