Úrskurđarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađsađgerđa
Mál nr. 31/2009
Úrskurđur
Á fundi úrskurđarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađsađgerđa ţann 10. desember 2009 var kveđinn upp svohljóđandi úrskurđur í máli A nr. 31/2009.
1.
Málsatvik og kćruefni
Málsatvik eru ţau ađ međ bréfi, dags. 18. mars 2009, tilkynnti Vinnumálastofnun kćranda, A, ađ Vinnumálastofnun hafi ákveđiđ ađ stöđva greiđslur atvinnuleysisbóta til hans, međ vísan til c-liđar 3. gr. og 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, ţar sem hann er í námi. Kćrandi vildi ekki una ţeirri ákvörđun og kćrđi hana til úrskurđarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađsađgerđa. Hann gerir ţá kröfu ađ hin kćrđa ákvörđun verđi felld úr gildi. Vinnumálastofnun krefst ţess ađ hin kćrđa ákvörđun verđi stađfest. Kćrandi hefur stundađ nám í viđskiptadeild viđ Háskólann á Bifröst frá haustinu 2007. Hann er nú í fjarnámi í 50% námshlutfalli og kveđst taka tvö fög á önn af fjórum mögulegum. Nám ţetta sé á mörkum ţess ađ vera lánshćft hjá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Kćrandi vísar til ţess ađ hann eigi sem námsmađur í minna en 75% námi rétt á atvinnuleysisbótum og ađ hann hafi ađ öđru leyti fullnćgt ţeim kröfum sem Vinnumálastofnun geri til ţeirra er sćki um bćtur, međal annars um útvegun gagna. Enn fremur fullyrđir kćrandi ađ fjárhagsleg stađa hans sé slćm og ađ hann fái ekki yfirdráttarlán í banka. Kćrandi segi ađ ţađ sé ekki hans val ađ vera atvinnulaus enda sćki hann um vinnu nánast daglega.
Vinnumálastofnun sendi greinargerđ, dags. 4. september 2009, en síđar kom í ljós ađ hún hafđi veriđ send fyrir mistök og var ekki endanleg greinargerđ. Ný greinargerđ var send og er hún dagsett 12. október 2009. Í endanlegu greinargerđinni kemur fram ađ Vinnumálastofnun hafi hafiđ virkara eftirlit međ stöđu og högum ţeirra sem fái greiđslur úr atvinnuleysistryggingasjóđi. Beinist rannsóknin ekki síst ađ ţví hvort ţeir sem fái atvinnuleysisbćtur uppfylli skilyrđi laga um atvinnuleysistryggingar. Viđ samkeyrslu gagna úr nemendaskrá Háskólans á Bifröst og Vinnumálastofnunar hafi orđiđ ljóst ađ kćrandi stundi nám viđ fyrrgreinda menntastofnun samhliđa ţví ađ vera skráđur á atvinnuleysisbćtur. Kćranda hafi veriđ tilkynnt međ bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 18. mars 2009, sú ákvörđun stofnunarinnar ađ stöđva greiđslur atvinnuleysisbóta til hans ţar sem hann stundađi lánshćft nám. Kćranda hafi í sama bréfi veriđ gefinn sjö daga frestur til ađ koma međ athugasemdir viđ nefnda ákvörđun. Kćrandi hafi sent athugasemdir sínar viđ ákvörđunina međ bréfi, dags. 20. mars 2009, bćđi til Vinnumálastofnunar og úrskurđarnefndar og hafi máliđ ţá veriđ sett í kćruferli samkvćmt stjórnsýslulögum, nr. 37/1993.
Vinnumálastofnun vitnar til 52. gr. ţágildandi laga um atvinnuleysistryggingar og c-liđar 3. gr. laganna máli sínu til stuđnings. Ţađ sé ljóst af tilvitnuđum ákvćđum ađ ţađ sé ekki tilgangur laganna ađ tryggja námsmönnum framfćrslu međan ţeir stunda nám. Í athugasemdum viđ 52. gr. frumvarpsins sé ţví haldiđ fram ađ ţađ sé meginregla ađ námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum hvort sem námiđ er í dag- eđa kvöldskóla eđa fjarnám. Fram kemur ađ međal framlagđra gagna málsins sé vottorđ um skólavist frá Háskólanum á Bifröst. Ţar komi fram ađ nám ţađ er kćrandi stundi sé 12 ECTS einingar og teljist 30 ECTS til fulls náms. Samkvćmt upplýsingum frá Háskólanum á Bifröst hafi kćrandi ţegar lokiđ 38 ECTS einingum á skólaárinu 2008–2009. Í fyrirliggjandi gögnum sem Vinnumálastofnun hafi aflađ viđ rannsókn málsins komi fram ađ slíkur einingafjöldi uppfylli skilyrđi Lánasjóđs íslenskra námsmanna um lánshćft nám.
Í 2. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé sú skylda lögđ á Vinnumálastofnun ađ meta sérstaklega hvort umsćkjandi geti talist tryggđur stundi hann nám međ starfi og missi síđar starfiđ ef námiđ er ekki lánshćft samkvćmt reglum um Lánasjóđ íslenskra námsmanna. Ţar sem nám kćranda sé lánshćft hjá Lánasjóđi íslenskra námsmanna eigi undantekningarreglan ekki viđ um hann. Í 3. mgr. 52. gr. laganna sé Vinnumálastofnun faliđ ađ meta sérstaklega hvort sá er stundar nám en er í lćgra námshlutfalli en 75% uppfylli skilyrđi laganna ţrátt fyrir námiđ. Í ljósi ţess ađ um matskennda lagareglu sé ađ rćđa hafi Vinnumálastofnun sett sér verklagsreglur til ađ tryggja samrćmda stjórnsýsluframkvćmd en ţó sé hvert tilfelli metiđ sjálfstćtt. Ţá megi og hafa hliđsjón af lögum um vinnumarkađsađgerđir, nr. 55/2006, og reglugerđ um nám og námskeiđ, nr. 13/2009, sem eru viđurkennd sem vinnumarkađsúrrćđi. Af lestri greinargerđar međ ţeim lögum sé ljóst ađ áhersla er lögđ á ađ ţeir sem hljóti atvinnuleysisbćtur skv. 3. mgr. 52. gr. ţurfi ađ vera í virkri atvinnuleit og eigi möguleika á ađ taka starfi samhliđa námi. Einnig beri ađ líta til umfangs námsins. Vinnumálastofnun segir ađ í fyrrgreindum verklagsreglum sé ţađ gert ađ skilyrđi ađ atvinnuleitandi geti talist í virkri atvinnuleit samhliđa námi sínu. Almennt sé taliđ ađ hćgt sé ađ stunda nám í kvöldskóla og fjarnámi, sem ekki sé lánshćft samkvćmt reglum Lánasjóđs íslenskra námsmanna, og almennt bóknám á framhaldsskólastigi sem nemur 1/3 af fullu námi ef veriđ sé ađ ljúka námi. Fram kemur ađ ţađ sé ljóst ađ svo umfangsmikiđ nám sem kćrandi er í gangi gegn verklagsreglum Vinnumálastofnunar um beitingu 3. mgr. 52. gr. Ţá beri og ađ athuga ađ flestum námskeiđum á háskólastigi fylgi umtalsverđur undirbúningur og heimavinna sem eigi sér stađ utan skólatíma. Kćranda var međ bréfi úrskurđarnefndarinnar, dags. 10. september 2009, sent afrit af fyrri greinargerđ Vinnumálastofnunar, dags. 4. september 2009, og gefinn kostur á ađ koma á framfćri athugasemdum fyrir 24. september 2009. Bréf frá kćranda er dagsett 17. september 2009. Ţar kemur međal annars fram ađ rökstuđningur hans byggist á ţví ađ ţađ sé ekki hans val ađ vera atvinnulaus enda sćki hann um vinnu nánast daglega. Hann kveđst stunda fjarnám í viđskiptadeild Háskólans á Bifröst og taki tvö fög á önn af fjórum mögulegum, sem geri um 50% nám. Ţađ sé á mörkum ţess ađ vera lánshćft hjá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Kćrandi fer fram á ţađ viđ úrskurđarnefndina ađ fá ađ halda námi sínu áfram ţar sem hann sé ađ mennta sig til framtíđar og dvöl hans á atvinnuleysisskrá sé tímabundin.
Síđari greinargerđ Vinnumálastofnunar, dags. 12. október 2009, var send kćranda međ bréfi úrskurđarnefndar, dags. 14. október 2009. Athugasemdir kćranda eru dagsettar 15. október 2009. Ţar kemur međal annars fram ađ ţar sem Vinnumálastofnun telji hann stunda fullt nám eđa umfangsmikiđ nám í fjarnámi vilji hann koma ţví á framfćri ađ umfangsmikiđ nám teljist 24–30 ECTS einingar en fullt háskólanám séu 30 ECTS einingar. Nám kćranda sé 12 ECTS einingar. Fullt fjarnám frá Háskólanum á Bifröst séu 24 ECTS einingar og fyllilega hćgt ađ stunda ţađ međ vinnu enda sé námiđ sérsniđiđ ţeim sem eru ađ vinna. Kćrandi telur Vinnumálastofnun ekki hafa kynnt sér námsframbođ og námsframvindu í Háskólanum á Bifröst, en 12 ECTS einingar séu 50% nám. Vinnumálastofnun telji ţađ vera yfir 75% námshlutfall sem standist engan veginn. Kćrandi telur sig falla undir undantekningarákvćđi 3. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar ţar sem hann hafi veriđ í minna en 50% námshlutfalli.
2.
Niđurstađa
Ákvörđun Vinnumálastofnunar um niđurfellingu atvinnuleysisbóta var tekin ţann 18. mars 2009. Ţá var í gildi svohljóđandi skilgreining á námi, sbr. c-liđ 3. gr. laganna:
Nám: 75–100% samfellt nám, verklegt eđa bóklegt, í viđurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuđi. Enn fremur er átt viđ 75–100% nám á háskólastigi og ţađ nám annađ sem gerir sambćrilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeiđ teljast ekki til náms. Sú regla gilti ađ hver sá sem stundar nám, sbr. c-liđ 3. gr., teldist ekki tryggđur á sama tímabili enda vćri námiđ ekki hluti vinnumarkađsađgerđa samkvćmt ákvörđun Vinnumálastofnunar, sbr. ţágildandi 1. mgr. 52. gr. laganna. Samkvćmt ţágildandi 3. mgr. 52. gr. bar Vinnumálastofnun ađ meta sérstaklega hvort sá er stundar nám en er í lćgra námshlutfalli en 75% uppfylli skilyrđi laganna ţrátt fyrir námiđ. Af hálfu Vinnumálastofnunar hefur nám kćranda veriđ metiđ svo umfangsmikiđ ađ hann geti ekki talist vera í virkri atvinnuleit samhliđa náminu en slík atvinnuleit er eitt skilyrđa fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna, sbr. a-liđ 1. mgr. 13. gr. og 14. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Samkvćmt upplýsingum frá Háskólanum á Bifröst var kćrandi skráđur í fullt nám á haustönn 2008 og í upphafi vorannar 2009. Námiđ er lánshćft hjá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Hann sagđi sig hins vegar úr tveimur fögum ţegar leiđ á vorönn 2009 og var svo skráđur í 2 fög sem er 50% námshlutfall. Ekki verđur fallist á ađ sá sem stundar lánshćft nám sem fellur undir skilgreiningu 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar á námi geti sagt sig úr einstökum fögum og í framhaldinu átt rétt á atvinnuleysisbótum. Í ţví sambandi má nefna ađ samkvćmt 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar skal sá sem segir sig úr námi án gildra ástćđna sćta 40 daga biđtíma eftir bótum.
Samkvćmt ţví sem ađ framan segir á kćrandi ekki rétt á atvinnuleysisbótum međan hann stundar lánshćft nám sitt viđ Háskólann á Bifröst. Sú ákvörđun Vinnumálastofnunar ađ stöđva greiđslu atvinnuleysisbóta til hans er ţví stađfest.
Úrskurđarorđ
Sú ákvörđun Vinnumálastofnunar ađ stöđva greiđslu atvinnuleysisbóta til A frá 18. mars 2009 er stađfest.
Brynhildur Georgsdóttir, formađur
Hulda Rós Rúriksdóttir
Helgi Áss Grétarsson


