Úrskurđarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađs­ađgerđa

Mál nr. 72/2009

10.12.2009

Úrskurđur

Á fundi úrskurđarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađsađgerđa ţann 10. desember 2009 var kveđinn upp svohljóđandi úrskurđur í máli A nr. 72/2009.

1.

Málsatvik og kćruefni

Málsatvik eru ţau ađ kćrandi, A, sótti um atvinnuleysisbćtur međ rafrćnni umsókn, dags. 7. maí 2009, og stađfesti hana skriflega sama dag. Umsóknin var samţykkt ţann 30. maí 2009. Af hálfu Vinnumálastofnunar segir ađ stofnunin hafi ekki tekiđ formlega ákvörđun í máli kćranda og í samrćmi viđ verklagsreglur stofnunarinnar er lúta ađ námsmönnum milli anna, hafi kćrandi fengiđ greiddar atvinnuleysisbćtur fyrir júní, júlí og ágúst, eđa ţađ tímabil sem námsmenn eiga ekki rétt á framfćrslu frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Kćrandi vildi ekki una ţví ađ fá ekki greiddar bćtur frá og međ dagsetningu umsóknar um atvinnuleysisbćtur og lagđi fram kćru til úrskurđarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkađsađgerđa međ erindi, dags. 3. júlí 2009. Vinnumálastofnun krefst ţess ađ ákvörđun stofnunarinnar um upphaf greiđslu atvinnuleysisbóta verđi stađfest.

Samkvćmt vottorđi Háskóla Íslands, dags. 5. maí 2009, var kćrandi skráđ stúdent viđ skólann skólaáriđ 2008–2009. Hún var skráđ í 30 ETCS einingar á vorönn og skráđ áfram í nám haustiđ 2009. Í vottorđi vinnuveitanda kemur fram ađ kćrandi hafi starfađ hjá X ehf. frá 13. febrúar 1989 til 30. apríl 2009 en ţá var henni sagt upp vegna samdráttar. Kćrandi kveđst hafa veriđ í 100% vinnu út apríl síđastliđinn en fariđ í nám međ starfinu á uppsagnarfrestinum til ađ gera sig hćfari til ađ fá starf ađ nýju. Hún krefst ţess ađ fá atvinnuleysisbćtur frá 7. maí eđa til vara frá 12. maí 2009. Hún kveđst telja réttmćtt ađ fá greiddar atvinnuleysisbćtur frá ţeim degi sem starfstíma hennar lauk ţrátt fyrir ađ hún hafi veriđ í skóla međ vinnunni. Ţađ telji hún málinu óviđkomandi.

Í greinargerđ Vinnumálastofnunar, dags. 23. september 2009, kemur fram stofnunin líti svo á ađ kćrandi sé međ kćru sinni ađ mótmćla ţví ađ hafa veriđ sett á ţađ tímabil sem námsmenn eigi ekki rétt á framfćrslu frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Vinnumálastofnun vísar í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006. Stofnunin tekur fram ađ ákvćđi 52. gr. laganna sé mjög skýrt og taki međ berum orđum fram ađ sá sem stundi nám sé ekki tryggđur á sama tímabili. Í athugasemdum viđ 52. gr. í frumvarpi ţví sem varđ ađ lögum um atvinnuleysistryggingar komi međal annars fram sú meginregla ađ námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Ţađ sé ljóst af tilvitnuđu ákvćđi ađ ţađ sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar ađ tryggja námsmönnum framfćrslu međan ţeir stunda nám, heldur skuli námsmenn almennt leita til Lánasjóđs íslenskra námsmanna. Samkvćmt úthlutunarreglum Lánasjóđs íslenskra námsmanna skuli grunnframfćrsla sýna lánsţörf námsmanns á námstíma sem teljist samkvćmt reglum lánasjóđsins níu mánuđir. Grunnframfćrsla samkvćmt úthlutunarreglum sjóđsins sé ţannig ákveđin sem 1/9 af mismuni framfćrslugrunnsins, eins og hann sé á hverjum tíma og ráđstöfunartekna námsmanns. Ţá byggist útreikningur á grunnframfćrslu á ţeim ECTS einingum sem námsmađur ljúki. Vinnumálastofnun hafi litiđ svo á ađ námsmenn geti ekki átt rétt á atvinnuleysisbótum á sama tíma og ţeir njóti greiđslna frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna. Viđ gerđ verklagsreglna hvađ varđi námsmenn hafi ţví veriđ horft til ţess ađ ţeir námsmenn sem stundi lánshćft nám á vorönn og skráđir séu í áframhaldandi nám eftir sumariđ, eigi rétt á framfćrslu frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna níu mánuđi af árinu. Ţađ sé eindregin afstađa Vinnumálastofnunar ađ námsmenn geti ekki átt rétt á atvinnuleysisbótum fyrir sama tímabil og ţeim sé tryggđ framfćrsla frá Lánasjóđi íslenskra námsmanna.

Kćranda var međ bréfi úrskurđarnefndarinnar, dags. 28. september 2009, sent afrit af greinargerđ Vinnumálastofnunar og gefinn kostur á ađ koma á framfćri frekari athugasemdum fyrir 12. október 2009. Engar frekari athugasemdir bárust frá kćranda.

 

2.

Niđurstađa

Í 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segir ađ hver sá sem stundar nám, sbr. c-liđ 3. gr., teljist ekki tryggđur á sama tímabili enda sé námiđ ekki hluti vinnumarkađsađgerđa samkvćmt ákvörđun Vinnumálastofnunar. Í athugasemdum viđ nefnda lagagrein í frumvarpi ţví sem varđ ađ lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram sú meginregla ađ námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum og ekki skipti máli hvort um sé ađ rćđa dag- eđa kvöldskóla eđa fjarnám. Kćrandi var skráđ í 30 ECTS eininga nám á vorönn 2009 og samkvćmt framangreindri meginreglu átti hún ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrir maí mánuđ 2009.

Í 2. mgr. 52. gr. segir ađ ţrátt fyrir 1.mgr. skuli Vinnumálastofnun meta sérstaklega hvort umsćkjandi um atvinnuleysisbćtur geti talist tryggđur samkvćmt lögum ţessum ţegar hann hefur stundađ nám međ starfi sínu sem hann missti og námiđ er ekki lánshćft samkvćmt reglum um Lánasjóđ íslenskra námsmanna. Nám kćranda er lánshćft og hún á ţví heldur ekki rétt á atvinnuleysisbótum á grundvelli 2. mgr. 52. gr.

Samkvćmt skýru ákvćđi 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar átti kćrandi ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrir maí mánuđ 2009.

 

Úrskurđarorđ

Hin kćrđa ákvörđun Vinnumálastofnunar í máli A er stađfest.

 

 

Brynhildur Georgsdóttir, formađur

Hulda Rós Rúriksdóttir

Helgi Áss Grétarsson



 

Úrskurđasafn




ţetta vefsvćđi byggir á eplica. eplica veflausnirveflausnir - nánari upplýsingar á heimasíđu eplica.