Forsætisráðuneyti

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál

Úrskurðarnefnd um upplýsingamál er starfrækt á grundvelli V. kafla upplýsingalaga nr. 50/1996 til að leysa úr ágreiningsmálum um aðgang almennings að upplýsingum hjá stjórnvöldum. Nefndin er sjálfstæð og óháð stjórnsýslunefnd sem skipað er til hliðar við hið almenna stjórnkerfi ríkis og sveitarfélaga. Valdsvið nefndarinnar nær til allrar stjórnsýslu hins opinbera án tillits til á hvaða stjórnsýslustigi ákvörðun er tekin. Aðili þarf því ekki að tæma aðrar kæruleiðir innan stjórnsýslunnar áður en til hennar er leitað. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir og verður ekki skotið annað innan stjórnsýslunnar. Þeir hafa því jafnframt fordæmisgildi fyrir önnur stjórnvöld og stuðla þannig að auknu samræmi í framkvæmd upplýsingalaganna.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu nefndarinnar.

 

Óbyggðanefnd

Óbyggðanefnd er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem á grundvelli III. kafla þjóðlendulaga hefur þríþætt hlutverk.

1. Að kanna og skera úr um hvaða land telst til þjóðlendna og hver séu mörk þeirra og eignarlanda.
2. Að skera úr um mörk þess hluta þjóðlendu sem nýttur er sem afréttur.
3. Að úrskurða um eignarréttindi innan þjóðlendna.

Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu nefndarinnar

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innranetinnranet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.