Almennar leiðbeiningar um kærur til Úrskurðarnefndar almannatrygginga

1. Hvað er hægt að kæra til Úrskurðarnefndar almannatrygginga?

Til nefndarinnar verður kærður ágreiningur sem rís um grundvöll, skilyrði og upphæð bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007 um almannatryggingar eða samkvæmt lögum nr. 99/2007 um félagslega aðstoð.

Þá er unnt að kæra til úrskurðarnefndarinnar niðurstöður Tryggingastofnunar ríkisins í málum er varða sjúklingatryggingu, sbr. lög nr. 111/2000, um sjúklingatryggingu.

Ágreiningi vegna örorkumata tryggingalækna sem ætluð eru til notkunar hjá lífeyrissjóðum, verður ekki skotið til úrskurðarnefndar almannatrygginga.

2. Kærufrestur.

Kærufrestur er þrír mánuðir frá því að Tryggingastofnun ríkisins tilkynnti aðila máls um ákvörðun.

3. Kærueyðublöð.

Kærueyðublað liggur frammi hjá Tryggingastofnun ríkisins, Laugavegi 114, Reykjavík og hjá umboðsmönnum hennar.

Eyðublaðið skýrir sig að mestu sjálft. Kæra verður að vera skrifleg, en ekki er nauðsynlegt að eyðublaðið sé notað. Æskilegt er að ljósrit af bréfi því sem varðar hina kærðu afgreiðslu Tryggingastofnunar fylgi .

Kæra þarf að berast úrskurðarnefnd undirrituð af þeim sem kærir eða af þeim sem hefur fengið umboð til þess, - þá ásamt umboði. Þá er og hægt að prenta eyðublaðið út af vefnum.

Hægt er að nálgast kærueyðublaðið hér:

Eyðublað úrskurðarnefndar almannatrygginga (PDF, 15 KB)

Eyðublað úrskurðarnefndar almannatrygginga (WORD, 38KB)

Sé pdf-skjalið valið til útprentunar þar að hafa Acrobat Reader uppsett á tölvunni.

Ef þú hefur ekki Acrobat Reader á tölvunni þá má nálgast það hér http://www.adobe.com/products/acrobat/readstep2.html

4. Gangur kærumáls hjá úrskurðarnefndinni eftir að kæra berst.

  1. Kæranda er sent bréf um móttöku kæru.
  2. Úrskurðarnefndin óskar skriflegrar skýringar Tryggingstofnunar ríkisins á kærðri afgreiðslu/ákvörðun.
  3. Skrifleg skýring Tryggingastofnunar er send kæranda til kynningar og gefst honum færi á að koma að athugasemdum og/eða frekari gögnum.
  4. Þegar undirbúningi máls er lokið tekur nefndin kæruna til meðferðar og úrskurðar.
  5. Skriflegur úrskurður nefndarinnar er sendur kæranda og Tryggingstofnun ríkisins. Afgreiðslutími máls hjá Úrskurðarnefnd almannatrygginga er að jafnaði þrír mánuðir.
 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefhönnunvefhönnun - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.