Hoppa yfir valmynd

31 Húsnæðis- og skipulagsmál

Innviðaráðuneytið
Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð innviðaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra. Það skiptist í tvo málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum, sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2023–2024

Heildargjöld málefnasviðs 31 Húsnæðis- og skipulagsmál árið 2024 eru áætluð 25.022,8 m.kr. og aukast um 5.884,9 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023 eða sem svarar til 31,2%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 6.161,4 m.kr. milli ára eða sem svarar til 32,7 %.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Útgjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2021 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2021 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

31.10 Húsnæðismál

Starfsemi málaflokksins fellur undir húsnæðisbætur, stofnframlög, vaxtabætur og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Aukið jafnvægi á húsnæðismarkaði þar sem fjölbreytt framboð íbúða mætir þörf og þróun húsnæðis- og leiguverð er stöðug.

Auka framboð íbúða og hlutfall hagkvæmra íbúða á viðráðanlegu verði. Stutt verði við tekjulága einstaklinga í gegnum lánveitingar Húsnæðissjóðs, þ.m.t. hlutdeildarlán.

Innviðaráðuneyti,

HMS

Lánsfjárheimild í 5.gr. fjárlaga

Auka stuðning við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög með stofnframlögum með það að markmiði að auka framboð á leiguíbúðum á viðráðanlegu verði fyrir tekjulægri heimili.

HMS

5.700 m. kr.

Markmið 2: Skilvirk stjórnsýsla og bætt starfsumhverfi mannvirkjagerðar stuðlar að auknum gæðum, öryggi, rekjanleika og hagkvæmni íbúðaruppbyggingar í jafnvægi við umhverfið

Uppbygging stafrænna lausna til að bæta rauntímaupplýsingar um húsnæðismarkað, s.s. húsnæðisgrunnur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

HMS

Innan ramma

Mótun rannsóknarumhverfis mannvirkjagerðar og nýsköpunar í gegnum Ask – mannvirkjarannsóknarsjóð til að auka þekkingu og mæta samfélagslegum áskorunum á sviði mannvirkjagerðar, auk aðgerða til lækkunar kolefnisspors.* 

HMS

37,5 m.kr.

Markmið 3: Aukið húsnæðisöryggi þar sem húsnæðisstuðningi er beint til þeirra sem standa höllum fæti á húsnæðismarkaði og sköpuð eru skilyrði til að öll hafi aðgengi að öruggu og góðu húsnæði með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði.

Endurskoðun húsaleigulaga m.a. til að bæta húsnæðisöryggi leigjenda.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Ný miðlæg leiguskrá íbúðarhúsnæðis.

HMS

Innan ramma

Markmið 4: Framboð íbúða stuðlar að virkum vinnumarkaði og styður við öflug atvinnusóknarsvæði um land allt

Gerð íbúðaþarfagreiningar, þ.e. greina þörf á nýjum íbúðum til að mæta áætlaðri eftirspurn á grundvelli fólksfjölgunar, óuppfylltri íbúðaþörf og niðurstöðum húsnæðisáætlunar.

HMS og sveitarfélög

Innan ramma

     

* Verkefnið styður jafnframt við markmið í málaflokki 31.20

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 24.312,9 m. kr. og hækkar um 5.997,7 m. kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 245,4 m.kr. þ.a. nemur tekjuheimild til að standa undir launa- og verðbótum 33,7 m.kr. Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er fjárheimild málaflokksins aukin um 5.700 m.kr. vegna aukinna stofnframlaga, sbr. markmið nr. 1. Helstu verkþættir á næsta ári er aukin uppbygging íbúða innan almenna íbúðakerfisins.
  2. Fjárheimild til húsnæðisbóta lækkar um 500 m.kr. á milli ára þar sem áætluð fjölgun bótaþega í kjölfar hækkana tekjumarka og grunnfjárhæða hefur ekki raungerst.
  3. Fjárheimild til uppbyggingar á Aski, samkeppnissjóði um bygginga- og mannvirkjarannsóknir, er aukin tímabundið að fjárhæð 37,5 m. kr á móti framlagi sem fellur niður.
  4. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 161,9 m. kr. og er útfært hlutfallslega niður á stofnanir og verkefni málaflokks.

31.20 Skipulagsmál

Starfsemi málaflokksins fellur undir Skipulagsstofnun og Skipulagssjóð. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðar-skiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur, o.fl. Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Gagnsæ og skilvirk stjórnsýsla með áherslu á stafrænar lausnir

Endurskoðun verklags til að auka skilvirkni í málsmeðferð erinda. 

Skipulagsstofnun 

Innan ramma

Innleiðing stafræns deiliskipulags og  

áframhaldandi þróun skipulagsgáttar.

Skipulagsstofnun

Innan ramma

Markmið 2: Mótun stefnu á svæðis- og landvísu

Gerð strandsvæðisskipulaga í Eyjafirði og Skjálfanda.

Skipulagsstofnun 

Innan ramma

Framfylgd aðgerða landsskipulagsstefnu.

Innviðaráðuneyti

Skipulagsstofnun 

Innan ramma

Markmið 3: Vönduð skipulagsgerð byggð á traustum gögnum

Styrkja leiðbeinandi hlutverk Skipulagsstofnunar við sveitarfélög við skipulagsgerð og afgreiðslu skipulagstillagna. 

Skipulagsstofnun 

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 709,9 m.kr. og lækkar um 112,8 m. kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 31,1 m. kr., þ.e. nemur tekjuheimild til að mæta launa- og verðbótum 2,2 m.kr. Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 85,0 m.kr. Um er að ræða tímabundna fjárheimild til skipulagssjóðs sem fellur niður.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 17,7 m.kr. og er útfært hlutfallslega á stofnanir og verkefni málaflokks.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum