Hoppa yfir valmynd

11 Samgöngu- og fjarskiptamál

Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið
Innviðaráðuneytið

Skilgreining málefnasviðs

Starfsemi á þessu málefnasviði er á ábyrgð innviðaráðherra og háskóla, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Það skiptist í þrjá málaflokka sem sjá má í eftirfarandi töflu. Þar má jafnframt sjá fjárhagslega þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024. Helstu áherslum, framtíðarsýn og meginmarkmiðum á málefnasviðinu er lýst í fjármálaáætlun.

Fjárhagsleg þróun málefnasviðsins og einstakra málaflokka á tímabilinu 2022–2024

Útgjaldarammi - heildaryfirlit og breytingar eftir tilefnum

Myndin hér á eftir sýnir sundurliðaðar breytingar á útgjaldaramma málefnasviðsins eftir helstu tilefnum sem nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða.

Breytingar á ramma milli áranna 2023–2024

Heildargjöld málefnasviðs 11 Samgöngu- og fjarskiptamál árið 2024 eru áætluð 56.339,6 m.kr. og aukast um 2.303,7 m.kr. á föstu verðlagi fjárlaga 2023 eða sem svarar til 4,4%. Þegar tekið er tillit til áhrifa af almennum launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöldin um 3.921,8 m.kr. milli ára eða sem svarar til 7,5 %.

Myndin endurspeglar þá útfærslu og forgangsröðun sem unnin er út frá stefnumótun málefnasviðsins. Sú niðurstaða getur eftir atvikum vikið frá þeim viðmiðum sem sett voru í fjármálaáætlun, t.a.m. þannig að nýju útgjaldasvigrúmi hafi að einhverju leyti verið jafnað á móti aðhaldsmarkmiði. Aðhaldsmarkmiðið felur m.a. í sér sértækar afkomubætandi aðhaldsráðstafanir á málefnasviðum og er nánar fjallað um þær í kafla 5 Gjöld ríkissjóðs.

Útgjaldarammi - hagræn skipting útgjalda

Í eftirfarandi töflu eru útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu, eins og nánar er greint frá í inngangskafla málefnasviða. Hagræn skipting útgjalda niður á málaflokka birtist í fylgiriti með fjárlögum.

Útgjöld málefnasviðsins, þróun fjárheimilda og fjármögnun frá árinu 2022 greind í fjóra þætti eftir hagrænni skiptingu

11.10 Samgöngur

Starfsemi málaflokksins er í höndum Samgöngustofu, Vegagerðarinnar og Rannsóknarnefndar samgönguslysa, auk Isavia í gegnum þjónustusamning um rekstur og framkvæmdir á flugvöllum. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára. Eingöngu eru sýndar breytingar sem verða á fjárveitingum til verkefna frá fjárlögum ársins 2023. Þannig endurspegla fjárhæðir ekki heildarfjárveitingar til verkefna nema í tilvikum þar sem breyting á milli ára felur í sér heildarfjármögnun verkefnisins.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaaðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Greiðar samgöngur

Áfram verður unnið að uppbyggingu hafnarmannvirkja. Meðal helstu verkefna eru endurbygging og endurbætur hafna á Siglufirði, Þorlákshöfn, Vestmannaeyjum og Ísafirði.

Vegagerðin

150 m.kr.

Undirbúningur vegna Sundabrautar heldur áfram þar sem unnið er að mati á umhverfisáhrifum, útfærslu valkosta, breytingum á skipulagsáætlunum auk samráðs við hagaðila. Í kjölfarið hefst undirbúningur útboðsferlis.

Vegagerðin

Innan ramma

Aukið verður við viðhald vega til þess að komast til móts við aukinn umferðaþunga.

Vegagerðin

Innan ramma

Markmið 2: Öruggar samgöngur

Átak í uppbyggingu á innanlandsflugvöllum verður tryggt með tilkomu varaflugvallagjalds þar sem lögð verður áhersla á uppbyggingu varaflugvallanna í Reykjavík, á Akureyri og Egilsstöðum. Samhliða verður unnið að uppbyggingu minni lendingarstaða svo þeir geti þjónað hlutverki sínu vegna sjúkra- og almannaflugs.

Isavia ohf.

Innan ramma

Áfram unnið að því að auka öryggi á stofnvegum í kringum höfuðborgarsvæðið með aðskilnaði akstursstefna á Kjalarnesi og Reykjanesbraut.

Vegagerðin

Innan ramma

Fækkun einbreiðra brúa á hringvegi heldur áfram með framkvæmdum við hringveg um Hornafjarðarfljót þar sem einbreiðum brúm fækkar um þrjár. Einnig verður unnið að framkvæmdum utan hringvegar sem fela í sér fækkun einbreiðra brúa, þar af lýkur fimm verkefnum á árinu 2024.

Vegagerðin

Innan ramma

Hafin verður vinna vegna endurbyggingar flugstöðvar á Reykjavíkurflugvelli. Unnin verður þarfagreining með flugrekendum og flugafgreiðsluaðilum ásamt hönnunarundirbúningi.

Isavia ohf.

Innan ramma

Markmið 3: Hagkvæmar samgöngur

Unnið er að endurskoðun á tekjuöflun ríkisins af ökutækjum og umferð með það að leiðarljósi að meðal annars fjármagna flýtiverkefni og jarðgangaáætlun.

Innviðaráðuneyti, fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Innan ramma

Áfram verður unnið að styttingu leiða á hringveginum, meðal annars með framkvæmdum á hringvegi um Hornafjarðarfljót.

Vegagerðin

Innan ramma

Framkvæmdir hefjast við nýja brú yfir Ölfusá

Vegagerðin

Sjá heimild í 6.gr. og umfjöllun í kafla 10.

Markmið 4: Umhverfislega sjálfbærar samgöngur

Unnið að vegvísi að vistvænum samgöngum á Íslandi til ársins 2030 með skilgreindum og tímasettum aðgerðum sem miði að því að markmiðum um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda miðað við 2005 verði náð.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Markmið 5: Jákvæð byggðaþróun

Uppsetning á fjarstýrðum flugturni á Reykjavíkurflugvelli ásamt því að vinna þarfagreiningu og móta framtíðarsýn um nýtingu tækninnar á fleiri áætlunarflugvöllum.

Isavia ohf.

Innan ramma

Áframhaldandi átak í uppbyggingu tengivega þar sem áhersla er á að styrkja og leggja bundið slitlag á umferðarlitla tengivegi.

Vegagerðin

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 52.927,7 m.kr. og hækkar um 2.157,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 1.465,3 m.kr. Ekki er um miklar breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins að ræða.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild til málaflokksins er aukin um 3.600 m.kr. til nýframkvæmda og viðhalds á vegakerfinu. Eins kemur inn 3.000 m.kr. fjárheimild til framkvæmda og viðhalds á vegakerfinu sem hliðrað var frá árinu 2023 yfir á árið 2024 sem hluti af aðgerðum stjórnvalda til að stemma stigu við þenslu í hagkerfinu.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 1.550 m.kr. tengt innheimtu á varaflugvallargjaldi og ætlað er til uppbyggingar á varaflugvöllum.
  3. Fjárheimild málaflokksins lækkar um 5.700 m.kr. vegna stórra tímabundinna verkefna sem falla niður á árinu.
  4. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 1.345,3 m.kr.

11.20 Fjarskipti, netöryggi og stafræn þróun

Undir málaflokkinn falla Fjarskiptastofa, fjarskiptasjóður og póstmál. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024 og tengingu þeirra við markmið ásamt helstu breytingum sem verða á fjárveitingum á milli ára.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis[SHÞ1]

Markmið 1: Allri byggð bjóðist aðgangur að áreiðanlegu háhraðanetsambandi og á öllum helstu stofnvegum sé áreiðanlegt farnetssamband.

Bæta aðgengi að samfelldu talsambandi og farneti á stofnvegum og helstu þjóðvegum utan þéttbýlis.

Fjarskiptastofa

Innan ramma

Greina áform fjarskiptafyrirtækja um uppbyggingu ljósleiðara og háhraðafarnets.

Fjarskiptastofa

Innan ramma

Mótun og framkvæmd mögulegs ríkisstuðnings við uppbyggingu fjarskiptainnviða utan markaðssvæða.

Fjarskiptasjóður

Innan ramma

Markmið 2: Aukin hæfni og nýting netöryggistækni.

Uppbygging og starfsemi samstarfsvettvangs um fræðslu, menntun og rannsóknir í netöryggi (NCC-IS) í samræmi við aðgerðaáætlun stjórnvalda á sviði netöryggis.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

123,5 m.kr.

Frekari uppbygging starfsemi miðstöðvar um stafræna nýsköpun (EDIH-IS).

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Áframhaldandi þróun á starfsemi netöryggisráðs og uppbygging samstarfsvettvangs stjórnvalda og atvinnulífs á sviði netöryggis.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Markmið 3: Öruggara netumhverfi.

Framkvæmd og eftirfylgni yfir 60 aðgerða í aðgerðaáætlun stjórnvalda í netöryggi.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Undirbúningur að endurnýjaðri tilskipun ESB um netöryggi mikilvægra innviða (NIS2).

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

Móta stefnu og regluverk um stafræna þróun, þ.m.t. gervigreind og rafræna auðkenningu í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar.

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 2.321,1 m.kr. og hækkar um 135,1 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum verðlagsbreytingum en þær nema 80,8 m.kr.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 123,5 m.kr. vegna framlaga frá DIGITAL Europe Programme, til stuðnings „Samstarfsvettvangs um fræðslu, menntun og rannsóknir í netöryggi“ (NCC-IS), sbr. markmið 2.
  2. Fjárheimild málaflokksins er aukin um 203 m.kr. til að standa straum af alþjónustukvöð sem lögð var á Íslandspóst. Samhliða er fellt niður tímabundin 100 m.kr. fjárheimild. Nettóaukning nemur því 103 m.kr.
  3. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 70,0 m.kr.

11.30 Stjórnsýsla innviðaráðuneytis

Undir málaflokkinn fellur aðalskrifstofa innviðaráðuneytis, ýmis verkefni og þjónustusamningar, m.a. við Slysavarnafélagið Landsbjörg. Nánar er fjallað um málaflokkinn í fjármálaáætlun, þar á meðal ábyrgðarskiptingu, helstu áskoranir og tækifæri, markmið og mælikvarða um árangur o.fl.

Í eftirfarandi töflu má sjá helstu verkefni málaflokksins árið 2024.

 

Helstu verkefni 2024

Framkvæmdaraðili

Breyting á fjárveitingu til verkefnis

Markmið 1: Aukinn árangur og þjónusta við borgara og atvinnulíf

 

Úttekt á almennri lagaumgjörð og stjórnsýslu sem heyrir undir ráðuneytið.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Vegvísir í loftslagsmálum.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

Frekari samhæfing stefna og áætlana.

Innviðaráðuneyti

Innan ramma

     

Heildarfjárheimild til málaflokksins fyrir árið 2024 er áætluð 1.090,8 m.kr. og hækkar um 10,8 m.kr. frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og verðlagsbreytingum en þær nema 72 m.kr. Ekki er um að ræða breytingar á hagrænni skiptingu innan málaflokksins.

Helstu breytingar á fjárheimildum málaflokksins eru eftirtaldar:

  1. Fjárheimild málaflokksins hækkar um 75 m.kr., um er að ræða útgjaldasvigrúm til ráðstöfunar í ýmis útgjaldamál, þar af er 25 m.kr. útgjaldasvigrúm sem ætlað var árið 2023 en var frestað sem hluti af aðgerðum stjórnvalda til að bregðast við þenslu í hagkerfinu.
  2. Hlutdeild málaflokksins í aðhaldskröfu málefnasviðsins nemur 64,2 m.kr. og er hlutfallslega skipt niður á verkefni.
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum