Innanríkisráðuneyti

Áfrýjunarnefnd neytendamála

Ákvarðanir Neytendastofu má kæra til sérstakrar nefndar, áfrýjunarnefndar neytendamála. Heimild til áfrýjunar er að finna í 4. gr. laga um Neytendastofu og talsmann neytenda, nr. 62/2005. Skrifleg rökstudd kæra skal berast áfrýjunarnefnd innan fjögurra vikna frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun Neytendastofu. Úrskurður áfrýjunarnefndar skal liggja fyrir innan sex vikna frá áfrýjun.

Mannanafnanefnd

Um mannanafnanefnd gilda ákvæði 21. - 23. gr. laga um mannanöfn nr. 45/1996
Innanríkisráðherra skipar nefndina til fjögurra ára í senn að fengnum tillögum heimspekideildar Háskóla Íslands, lagadeildar Háskóla Íslands og Íslenskrar málnefndar. Netfang: mannanafnanefnd@irr.is

Mannanafnaskrá

Í mannanafnaskrá er hægt að leita að mannanöfnum í sérstakri leitarvél eða eftir upphafsstaf í nafni.

Matsnefnd eignarnámsbóta

Núverandi formaður nefndarinnar er Helgi Jóhannesson hrl., en varaformaður er Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari. Aðsetur nefndarinnar er á skrifstofu formanns að Borgartúni 26, 105 Reykjavík, sími: 590 2600, fax: 5902606, e-mail: helgij@lex.is.

Úrskurðir á sviði samgöngu- og sveitarstjórnarmála

Úrskurðarvald ráðuneytisins nær til m.a. til vafaatriða sem upp kunna að koma við framkvæmd sveitarstjórnarmálefna. Til ráðuneytsins er því unnt að kæra ákvarðanir, úrlausnir, málsmeðferð og háttsemi sveitarfélaga og stofnana þeirra, svo og nefnda og ráða á vegum sveitarfélaga.

Úrskurðarnefnd fjarskipta- og póstmála

Skv. 13. gr. laga um Póst- og fjarskiptastofnun nr. 69/2003 er heimilt að kæra ákvarðanir Póst- og fjarskiptastofnunar til úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála. Sá sem á verulegra hagsmuna að gæta getur kært hvort heldur er málsmeðferð eða efni ákvörðunar. Kæra þarf að berast nefndinni innan fjögurra vikna frá því að kæranda varð kunnugt um ákvörðunina. Úrskurðir nefndarinnar eru endanlegir á stjórnsýslustigi.

Úrskurðir yfirfasteignamatsnefndar

Yfirfasteignamatsnefnd er ætlað að annast yfirmat fasteigna fyrir landið allt. Í 34.gr. laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 segir: „Hagsmunaaðilar geta kært niðurstöðu endurmats til yfirfasteignamatsnefndar. Kæra skal vera skrifleg og studd rökum og nauðsynlegum gögnum. Um meðferð máls fyrir nefndinni, framlagningu gagna eða málflutning fer eftir ákvörðun nefndarinnar. Niðurstaða kærumáls skal þegar tilkynnt aðila þess og nýtt matsverð þegar skráð í fasteignaskrá. Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar er fullnaðarúrskurður“.
Nefndin hefur aðsetur í innanríkisráðuneytinu við Sölvhólsgötu 7.

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.