Um yfirfasteignamatsnefnd

Yfirfasteignamatsnefnd

Yfirfasteignamatsnefnd er ætlað að annast yfirmat fasteigna fyrir landið allt.
Í 34.gr. laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 segir: „hagsmunaaðilar geta kært niðurstöðu endurmats til yfirfasteignamatsnefndar. Kæra skal vera skrifleg og studd rökum og nauðsynlegum gögnum. Um meðferð máls fyrir nefndinni, framlagningu gagna eða málflutning fer eftir ákvörðun nefndarinnar. Nefndin skal úrskurða slíkt mál innan þriggja mánaða frá kæru nema sérstök heimild fyrir frestun sé veitt af hálfu ráðuneytisins. Niðurstaða kærumáls skal þegar tilkynnt aðila þess og nýtt matsverð þegar skráð í fasteignaskrá. Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar er fullnaðarúrskurður“.

Nefndin hefur aðsetur í innanríkisráðuneytinu við Sölvhólsgötu 7.

Yfirfasteignamatsnefnd er þannig skipuð:

Jón Haukur Hauksson hdl., formaður
Inga Hersteinsdóttir, verkfræðingur
Ásta Þórarinsdóttir, hagfræðingur

Varamenn:
Þórey S. Þórðardóttir hrl.
Björn Karlsson, verkfræðingur
Sveinn Agnarsson, hagfræðingur

Ritari nefndarinnar er Guðný Jónsdóttir.
Netfang nefndarinnar er yfn@yfn.is.



 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica innrinetinnrinet - nánari upplýsingar á heimasíðu eplica.