Stöðunefnd lækna
Samkvæmt 36. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, með síðari breytingum, skipar ráðherra stöðunefnd lækna til þriggja ára í senn sem metur faglega hæfni umsækjenda um stöður framkvæmdastjóra lækninga og annarra stjórnenda lækninga á heilbrigðisstofnunum sem ríkið rekur.
Nefndin skal skila rökstuddu áliti til þess sem ræður í stöðuna innan sex vikna frá því að umsóknarfresti lýkur. Ráða má hvern þann lækni til starfa samkvæmt þessari grein sem talinn hefur verið hæfur.
Aðalmenn
- Anna Margrét Halldórsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis, formaður
- Haukur Hjaltason, tilnefndur af læknadeild Háskóla Íslands
- Vantar fulltrúa frá Læknafélagi Íslands
Varamenn
- Anna Margrét Guðmundsdóttir, tilnefnd af embætti landlæknis
- Elsa Valsdóttir, tilnefnd af læknadeild Háskóla Íslands
- Sigríður Ólína Haraldsdóttir, tilnefnd af Læknafélagi Íslands
Nefndin er skipuð af heilbrigðisráðherra frá 7. desember 2022 til 6. desember 2025.